Skaginn 3X gerir vinnsludekk fyrir HB Granda

Ingólfur Árnason, framkvæmdastjóri Skagans 3X, hefur sagt að um borð …
Ingólfur Árnason, framkvæmdastjóri Skagans 3X, hefur sagt að um borð í nýju Engeynni sé svo mikið af nýjum uppfinningum að fyrirtækið hafi lýst sjö nýjum einkaleyfum vegna vinnsluaðferðanna um borð.

Skaginn 3X og HB Grandi hafa gert með sér samkomulag þar sem Skaginn 3X mun bera ábyrgð á vinnsludekkinu um borð í nýju frystiskipi HB Granda.

Þetta er fjórði samningurinn milli fyrirtækjanna sem heildarlausn um borð í nýjum skipum HB Granda, en fyrirtækin hafa áður gert með sér samning um heildarlausnir um borð í systurskipin Engey, Akurey og Viðey, en þau skip hafa hlotið verðskuldaða athygli hvað varðar hugvit, sjálfvirkni og afurðagæði, að því er fram kemur í tilkynningu frá Skaganum 3X.

Vinnsludekkið eins og það mun koma til með að líta …
Vinnsludekkið eins og það mun koma til með að líta út. Teikning/Skaginn 3X

Styðji við nýjar og auknar kröfur

Mikill sveigjanleiki verður um borð hvað varðar vinnslu á mismunandi tegundum, fjölbreyttum vinnsluaðferðum og pökkunarmöguleikum.

„Vatnsskurður mun gera það að verkum að unnt verður að framleiða afurðir sem almennt þekkjast ekki um borð í frystiskipum. Það er mjög mikilvægt að hönnun á vinnslubúnaði, þ.m.t. pökkun, frysting og brettun styðji við nýjar og auknar kröfur markaðarins“ segir Jón Birgir Gunnarsson, markaðs- og sölustjóri hjá Skaganum 3X.

Skipið smíðað á Spáni

Spænska skipasmíðastöðin Astilleros Armon Gijon, S.A., annast smíði skipsins og mun stöðin afhenda vinnsludekkið frá Skaganum 3X sem hluta af heildarlausn til HB Granda. Skaginn 3X mun annast afhendingu á vinnsludekkinu í heild sinni, þar sem hluti búnaðar mun koma frá undirverktökum Skaginn 3X, svo sem Vélfag, Marel og Afak.

Ingólfur Árnason, framkvæmdastjóri Skagans 3X, segir að samningurinn og þessi einstaka hönnun á vinnsluskipinu sé afrakstur góðrar samvinnu milli Skaginn 3X og HB Granda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.304 kg
Ýsa 696 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 77 kg
Samtals 2.248 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.304 kg
Ýsa 696 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 77 kg
Samtals 2.248 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg

Skoða allar landanir »