„Erum hvergi nærri af baki dottin“

Gunnar Tómasson, framkvæmdastjóri Þorbjarnar, lét verkin tala við Grindarvíkurhöfn í …
Gunnar Tómasson, framkvæmdastjóri Þorbjarnar, lét verkin tala við Grindarvíkurhöfn í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fyrsta nýsmíði Þorbjarnar hf. í hálfa öld var sjósett í Gijón á Spáni í gær. „Þótt það hafi gengið á ýmsu í Grindavík síðustu mánuði þá erum við hvergi nærri af baki dottin. Við stefnum á að koma siglandi á nýju skipi inn í Grindavíkurhöfn fyrir sjómannadaginn og vonandi getum við hafið veiðar síðsumars,“ segir Gunnar Tómasson, framkvæmdastjóri Þorbjarnar hf., í fréttatilkynningu í tilefni af sjósetningunni.

Þessi nýi ísfiskstogari er 58 metra langur og 13,6 metra breiður og er fyrsta nýsmíði Þorbjarnar síðan 1967. Togarinn er nefndur í höfuðið á Huldu Björnsdóttur sem stofnaði Þorbjörn ásamt eiginmanni sínum Tómasi Þorvaldssyni, þann 24. nóvember árið 1953. Hulda vann hjá fyrirtækinu alla tíð.

„Nú er búið að sjósetja skrokkinn. Næsta skref er að setja á hann yfirbygginguna og setja upp þann búnað sem þarf. Við reiknum með því að þetta klárist allt með vorinu,“ segir Gunnar.

Undanfarin ár hefur Þorbjörn hf. tekið úr rekstri þrjú línuskip og tvo frystitogara en í staðinn hefur fyrirtækið keypt frystitogara frá Grænlandi og ísfisktogara frá Vestmannaeyjum. Að þessu sinni var þói ákveðið að smíða skip með þarfir útgerðarinnar að leiðarljósi, en Hulda Björnsdóttir er hönnuð af Sævari Birgissyni skipatæknifræðingi hjá verkfræðistofunni Skipasýn ehf. í nánu samstarfi við starfsmenn Þorbjörns. Skipasmíðastöðin Armon í Gijón sá um smíðina.

Hulda Björnsdóttir GK við sjósetninguna í gær.
Hulda Björnsdóttir GK við sjósetninguna í gær. Ljósmynd/Þorbjörn hf.

Rík áhersla á að draga úr orkunotkun

Fram kemur í tilkynningunni að við hönnun skipsins var lögð rík áhersla á að draga úr orkunotkun og þar með að umhverfisáhrif þess verði sem minnst. „Aðalvél skipsins, sem verður um 2400 KW, mun knýja skrúfu sem verður 5 metrar í þvermál.  Stærð og snúningshraði skrúfunnar verður lægri en áður hefur þekkst í eldri fiskiskipum af sambærilegri stærð.  Skipið verður þess vegna sérlega sparneytið og því í hópi sparneytnustu skipa í þessum flokki.  Þá verður skipið búið til veiða með tveimur botnvörpum samtímis og togvindurnar knúnar rafmagni.“

Frá vinstri: Gunnar Tómasson – framkvæmdastjóri Þorbjarnar, Friðrik J Arngrímsson,, …
Frá vinstri: Gunnar Tómasson – framkvæmdastjóri Þorbjarnar, Friðrik J Arngrímsson,, Hrannar Jón Emilsson, Ottó Hafliðason, Hjörtur Ingi Eiríksson, Sævar Birgisson, Ægir Óskar Gunnarsson og Þórhallur Gunnlaugsson. Ljósmynd/Þorbjörn hf.

Þá er einnig lögð sérstök áhersla á sjóhæfni skipsins með tilliti til öryggis og bættrar vinnuaðstöðu. Unnið hefur verið að því markmiði að aðbúnaður áhafnar verði sem bestur og allir skipverjar hafa sínar eigin vistarverur og hreinlætisaðstöðu.

„Mesta breytingin frá eldri skipum Þorbjarnar hf. varðandi vinnslu og meðferð aflans er sú að sjálfvirk flokkun á aflanum fer fram á vinnsludekki skipsins og frágangur aflans í fiskikör fer fram á einum stað á vinnsludekkinu.  Þaðan fer aflinn í lyftum niður í lest og verður lestarvinnunni  eingöngu sinnt af fjarstýrðum lyftara sem rennur á loftbita í lest skipsins.  Auk þess að annast flutning og stöflun á fiskikörum verður lyftarinn notaður við losun skipsins þegar það kemur til hafnar,“ segir í tilkynningunni.

Hulda Björnsdóttir GK
Hulda Björnsdóttir GK Ljósmynd/Þorbjörn hf.
Hulda Björnsdóttir GK
Hulda Björnsdóttir GK Ljósmynd/Þorbjörn hf.
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »