Bjarni Ólafsson AK kom til Neskaupstaðar í morgun með 1.810 tonn af kolmunna sem hann fékk í fjórum holum í færeysku lögsögunni. Vilhelm Þorsteinsson EA landaði þá 2.100 tonnum á Seyðisfirði í gær.
Gunnar Sverrisson verksmiðjustjóri Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði segir að lögð hafi verið áhersla á að halda verksmiðjunum á Seyðisfirði og í Neskaupstað gangandi að undanförnu þegar kolmunnaveiðin var heldur treg, að því er fram kemur á vef útgerðarinnar.
Til dæmis hafi Börkur NK landað síðasta farmi sínum bæði í Neskaupstað og á Seyðisfirði á mánudag og þriðjudag, svo unnt væri að halda verksmiðjunum gangandi. Landaði skipið 1.200 tonnum í Neskaupstað og 1.000 tonnum á Seyðisfirði. Upplýsir Gunnar að verksmiðjan á Seyðisfirði sé búin að taka á móti 41.000 tonnum af kolmunna frá því í marsmánuði.
Hafþór Eiríksson verksmiðjustjóri í Neskaupstað segir að Beitir NK hafi landað þar 2.400 tonnum í fyrradag og þá sé búið að taka á móti 48.000 tonnum af kolmunna á árinu þannig að verksmiðjur Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði og í Neskaupstað hafa samtals tekið á móti 89.000 tonnum.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 25.4.24 | 425,86 kr/kg |
Þorskur, slægður | 25.4.24 | 527,13 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 25.4.24 | 191,99 kr/kg |
Ýsa, slægð | 25.4.24 | 150,72 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 25.4.24 | 122,07 kr/kg |
Ufsi, slægður | 25.4.24 | 172,26 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 25.4.24 | 162,06 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 7.439 kg |
Ýsa | 738 kg |
Steinbítur | 48 kg |
Keila | 21 kg |
Karfi | 12 kg |
Samtals | 8.258 kg |
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 3.357 kg |
Þorskur | 383 kg |
Ýsa | 23 kg |
Samtals | 3.763 kg |
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 3.836 kg |
Samtals | 3.836 kg |
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.853 kg |
Þorskur | 296 kg |
Skarkoli | 100 kg |
Samtals | 2.249 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 25.4.24 | 425,86 kr/kg |
Þorskur, slægður | 25.4.24 | 527,13 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 25.4.24 | 191,99 kr/kg |
Ýsa, slægð | 25.4.24 | 150,72 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 25.4.24 | 122,07 kr/kg |
Ufsi, slægður | 25.4.24 | 172,26 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 25.4.24 | 162,06 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 7.439 kg |
Ýsa | 738 kg |
Steinbítur | 48 kg |
Keila | 21 kg |
Karfi | 12 kg |
Samtals | 8.258 kg |
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 3.357 kg |
Þorskur | 383 kg |
Ýsa | 23 kg |
Samtals | 3.763 kg |
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 3.836 kg |
Samtals | 3.836 kg |
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.853 kg |
Þorskur | 296 kg |
Skarkoli | 100 kg |
Samtals | 2.249 kg |