Þurfti að fara vegna ríkisstjórnarfundar

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. mbl.is/Valli

Allt of mikið ber á fordómum og palladómum í umræðunni um laxeldi. Þetta sagði Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, er hann setti málþing atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins um áhættumat í laxeldi.

Málþingið fer fram í húsakynnum ráðuneytisins að Skúlagötu 4 og er mjög vel sótt.

Í nýju frumvarpi sem Kristján hefur lagt fram er kveðið á um að Haf­rann­sókna­stofn­un geri bind­andi til­lög­ur að áhættumati erfðablönd­un­ar en til­lög­urn­ar verði áður born­ar und­ir svokallaða sam­ráðsnefnd um fisk­eldi, til fag­legr­ar og fræðilegr­ar um­fjöll­un­ar. Sagði ráðherrann að þessi nýjung hefði hlotið mesta gagnrýni af því sem sett er fram í frumvarpinu.

„Ég er að gera tilraun til að setja upp leið til að þessir aðilar geti talað saman,“ sagði hann og átti þar við þá sem sett sig hafa á móti laxeldi í sjókvíum og þá sem stutt hafa slíkt eldi.

Ráðherrann tók að lokum fram að hann þyrfti að yfirgefa málþingið strax að lokinni setningu þess, þar sem boðað hefði verið til ríkisstjórnarfundar klukkan níu, eða á sama tíma og málþingið hófst. Hann hefði fengið heimild til að rækja skyldur sínar sem ráðherra með þessum hætti, en síðan þyrfti hann að fara.

„Ég bið ykkur að hafa skilning á því. Það er ýmislegt um að vera þessa stundina.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 392,71 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 306,71 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 199,48 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 77,57 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 109,66 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 152,75 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Manni ÞH 88 Grásleppunet
Grásleppa 885 kg
Skarkoli 158 kg
Þorskur 49 kg
Samtals 1.092 kg
26.4.24 Sigrún GK 97 Grásleppunet
Grásleppa 1.491 kg
Þorskur 132 kg
Rauðmagi 13 kg
Samtals 1.636 kg
26.4.24 Magnús Jón ÓF 14 Grásleppunet
Grásleppa 1.223 kg
Þorskur 215 kg
Ufsi 51 kg
Ýsa 38 kg
Samtals 1.527 kg
26.4.24 Lundey SK 3 Grásleppunet
Grásleppa 680 kg
Þorskur 161 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 856 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 392,71 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 306,71 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 199,48 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 77,57 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 109,66 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 152,75 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Manni ÞH 88 Grásleppunet
Grásleppa 885 kg
Skarkoli 158 kg
Þorskur 49 kg
Samtals 1.092 kg
26.4.24 Sigrún GK 97 Grásleppunet
Grásleppa 1.491 kg
Þorskur 132 kg
Rauðmagi 13 kg
Samtals 1.636 kg
26.4.24 Magnús Jón ÓF 14 Grásleppunet
Grásleppa 1.223 kg
Þorskur 215 kg
Ufsi 51 kg
Ýsa 38 kg
Samtals 1.527 kg
26.4.24 Lundey SK 3 Grásleppunet
Grásleppa 680 kg
Þorskur 161 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 856 kg

Skoða allar landanir »