„Menn eru að þétta bátinn sem situr núna vel í fjörunni,“ segir Valur Valgeirsson, formaður björgunarsveitarinnar Bjargar á Suðureyri, um bát sem sigldi í strand utarlega í Súgandafirði síðdegis í dag.
Engin slys urðu á fólki, en gat kom á skrokk bátsins og hefur nokkur hópur frá björgunarsveitinni verið við störf á strandstað undanfarna tíma. Valur kveður bátinn ekki vera á leið burt í bráð, en kranabílstjóri sem fenginn var á staðinn treysti sér ekki til að taka bátinn á land. Því er ljóst að hann verður að fara til baka sömu leið og hann kom.
Töluverður fjöldi hefur verið við störf á strandstað frá því síðdegis.
Ljósmynd/Sæmundur Þórðarson
„Vandamálið er að það eru sker fyrir utan bátinn sem hann mun ekki fljóta yfir eins og stendur,“ segir Valur. „Þannig að það er verið að vinna í því að þétta hann og koma svo undir hann flotholtum.“
Skoðað verður á flóðinu í nótt hvenær best verði að koma bátinum út.
Ljósmynd/Sæmundur Þórðarson
Hann segir væntanlega verða reynt á morgun eða föstudag að koma bátinum á brott er sjávarföll verða hagstæðari. „Það verður skoðað í nótt á flóðinu hvernig þetta lítur út.“
Bæði stýri bátsins og skrúfa eru sködduð og það hefur lekið inn í hann með stýrinu og segir Valur væntanlega verða haft samband við björgunarskipið á Ísafirði er kemur að því að draga bátinn út. „Þetta er stutt leið sem þarf að draga hann og menn verða þá bara með stórar dælur um borð og hafa stjórn á lekanum.“
Bæði stýri bátsins og skrúfa eru sködduð og það hefur lekið inn í hann með stýrinu.
Ljósmynd/Sæmundur Þórðarson
Báturinn kemst ekki út vegna skerjanna fyrir aftan hann.
Ljósmynd/Sæmundur Þórðarson