Bráðveikur sjómaður fluttur með þyrlu og flugvél

Þyrla gæslunnar flaug með manninn á Þórshöfn þar sem sjúkraflugvél …
Þyrla gæslunnar flaug með manninn á Þórshöfn þar sem sjúkraflugvél tók við honum og flaug honum til Reykjavíkur. Facebook/Landhelgisgæsla Íslands

Beiðni um aðstoð vegna bráðveiks skipverja á línuskipi sem statt var um 15 sjómílur út af Langanesi barst Landhelgisgæslunni um hádegisbil í dag. TF-GRO var umsvifalaust send af stað sem og liðsmenn björgunarsveitarinnar Vopna á Vopnafirði sem héldu til móts við skipið á björgunarskipinu Sveinbirni Sveinssyni.

Þá var sjúkraflugvél kölluð út og beðin að halda á Þórshöfn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslu Íslands.

Klukkan 14:47 var þyrla Landhelgisgæslunnar komin að skipinu. Sigmaður og læknir fóru um borð og í kjölfarið var sjúklingurinn hífður upp í þyrluna af stafni skipsins.

Þyrlan flaug rakleiðis á Þórshöfn þar sem sjúkraflugvél Mýflugs beið og flaug með sjúklinginn til Reykjavíkur.

Þegar þyrlan var á heimleið óskaði lögreglan á Suðurlandi eftir aðstoð áhafnar þyrlunnar vegna göngumanns sem hafði örmagnast í grennd við Morinsheiði. Þegar þyrlan var skammt frá göngumanninum var útkallið afturkallað þar sem björgunarsveitamenn voru komnir að manninum og fylgdu honum niður í Bása.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 426,40 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,86 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,25 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 114,63 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 163,11 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Bobby 13 ÍS 373 Sjóstöng
Þorskur 64 kg
Steinbítur 7 kg
Samtals 71 kg
26.4.24 Bobby 6 ÍS 366 Sjóstöng
Þorskur 172 kg
Samtals 172 kg
26.4.24 Bobby 4 ÍS 364 Sjóstöng
Þorskur 328 kg
Samtals 328 kg
26.4.24 Bobby 9 ÍS 369 Sjóstöng
Þorskur 67 kg
Samtals 67 kg
26.4.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng
Þorskur 326 kg
Samtals 326 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 426,40 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,86 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,25 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 114,63 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 163,11 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Bobby 13 ÍS 373 Sjóstöng
Þorskur 64 kg
Steinbítur 7 kg
Samtals 71 kg
26.4.24 Bobby 6 ÍS 366 Sjóstöng
Þorskur 172 kg
Samtals 172 kg
26.4.24 Bobby 4 ÍS 364 Sjóstöng
Þorskur 328 kg
Samtals 328 kg
26.4.24 Bobby 9 ÍS 369 Sjóstöng
Þorskur 67 kg
Samtals 67 kg
26.4.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng
Þorskur 326 kg
Samtals 326 kg

Skoða allar landanir »