Vel gekk að draga línubát sem strandaði á Riftanga snemma í morgun til Raufarhafnar. Greint var frá því á sjöunda tímanum í morgun að bátur með tvo menn um borð hefði strandað og voru bæði björgunarsveitir og Landhelgisgæsla kölluð til.
Björgunarskipinu Gunnbjörgu tókst svo að draga línubátinn af strandstað og var komið með hann til Raufarhafnar að ganga hálf ellefu í morgun.
Menn töldu mögulegt að einhver drifbúnaður hefði laskast af því að báturinn átti erfitt með að ganga fyrir eigin vélarafli. Ákváðu þeir að taka hann í tog. Ekki er vitað hvert framhaldið verður, hvort báturinn verður hífður á land eða dreginn eitthvert annað.
„Þetta gekk vel. Það var ágætis blíða þarna og nokkuð gott í sjóinn þannig að þetta var með besta móti,“ segir Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi hjá Landsbjörg. „Þetta sýndi samt líka vel hvað það er gott að hafa þessi björgunarskip til taks, hvort sem þarf að bjarga fólki eða verðmætum. Það er augljóslega þörf fyrir þessi björgunarskip sem eru hringinn í kringum landið og þau hafa verið notuð þó nokkuð það sem af er þessu ári.“
Verið var að flytja línubátinn milli staða þegar hann strandaði og segir Davíð Már líklegt að hann hafi lent á einhverjum grynningum.
„Hann var hins vegar ekki alveg pikkfastur og þá kom sér vel að það var að flæða að á sama tíma. Það var svo að koma háflóð þegar björgunarskipið kom þar á og þá gátu menn haft hraðar hendur, hent kaðli um borð og kippt í hann,“ bætir hann við.
Ekki hafi verið kominn leki að bátnum, en mögulegt sé talið að einhver drifbúnaður hafi laskast.