Þrír fyrrverandi sviðsstjórar hjá Hafrannsóknastofnun segja að greinargerð fyrrverandi mannauðsstjóra stofnunarinnar, þar sem hann sagði stofnunina ekki hafa komið heiðarlega fram vegna uppsagna starfsmanna, sé í samræmi við þeirra upplifun af atburðarásinni.
Fram kemur í tilkynningu að þeim þyki miður að Sigurður Guðjónsson, forstjóri stofnunarinnar, hafi reynt að sverta mannorð Sólmundar Más Jónssonar, fyrrverandi mannauðsstjóra, í kvöldfréttum RÚV í gær í stað þess að svara efnislega hvort í einhverju sé farið með rangt mál í greinargerðinni.
Tilkynningin í heild sinni:
„Greinagerð fyrrverandi mannauðsstjóra Hafrannsóknastofnunar, Sólmundar Más Jónssonar, þar sem hann fer yfir aðdraganda þess að 10 starfsmönnum Hafró var sagt upp þann 21. nóvember síðastliðinn hefur verið töluvert í umræðu fjölmiðla undanfarinn sólarhring.
Í kvöldfréttum ríkissjónvarpsins kl. 22 í gær, 12. desember vísar Sigurður Guðjónsson forstjóri stofnunarinnar þeim ásökunum sem fram koma í greinargerð Sólmundar á bug og af orðum hans má dæma að Sólmundur fari með ósannindi í lýsingu sinni á aðdraganda uppsagna starfsman[n]anna.
Við undirrituð sem öll vorum í framkvæmdastjórn Hafrannsóknastofnunar í aðdraganda uppsagnanna viljum að fram komi að lýsing Sólmundar er í samræmi við okkar upplifun af atburðarásinni.
Það er miður að forstjóri stofnunarinnar reyni að sverta mannorð Sólmundar með þeim hætti sem heyra mátti í kvöldfréttum RÚV í gær í stað þess að svara efnislega ef í einhverju er farið með rangt mál í þeirri greinargerð.
Reykjavík, 13. desember 2019.
Ásta Guðmundsdóttir, fyrrverandi sviðsstjóri Gagnagrunna og upplýsingatækni
Héðinn Valdimarsson, fyrrverandi sviðsstjóri Umhverfissviðs
Þorsteinn Sigurðsson, fyrrverandi sviðsstjóri Uppsjávarlífríkissviðs“
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 26.4.24 | 392,95 kr/kg |
Þorskur, slægður | 26.4.24 | 307,20 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 26.4.24 | 201,29 kr/kg |
Ýsa, slægð | 26.4.24 | 78,20 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 26.4.24 | 110,74 kr/kg |
Ufsi, slægður | 26.4.24 | 133,49 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 26.4.24 | 156,42 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
26.4.24 Petra ÓF 88 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.572 kg |
Þorskur | 81 kg |
Skarkoli | 35 kg |
Steinbítur | 11 kg |
Ufsi | 5 kg |
Djúpkarfi | 1 kg |
Samtals | 1.705 kg |
26.4.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 546 kg |
Samtals | 546 kg |
26.4.24 Auður HU 94 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.519 kg |
Þorskur | 196 kg |
Steinbítur | 28 kg |
Rauðmagi | 25 kg |
Skarkoli | 4 kg |
Þykkvalúra | 1 kg |
Samtals | 1.773 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 26.4.24 | 392,95 kr/kg |
Þorskur, slægður | 26.4.24 | 307,20 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 26.4.24 | 201,29 kr/kg |
Ýsa, slægð | 26.4.24 | 78,20 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 26.4.24 | 110,74 kr/kg |
Ufsi, slægður | 26.4.24 | 133,49 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 26.4.24 | 156,42 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
26.4.24 Petra ÓF 88 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.572 kg |
Þorskur | 81 kg |
Skarkoli | 35 kg |
Steinbítur | 11 kg |
Ufsi | 5 kg |
Djúpkarfi | 1 kg |
Samtals | 1.705 kg |
26.4.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 546 kg |
Samtals | 546 kg |
26.4.24 Auður HU 94 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.519 kg |
Þorskur | 196 kg |
Steinbítur | 28 kg |
Rauðmagi | 25 kg |
Skarkoli | 4 kg |
Þykkvalúra | 1 kg |
Samtals | 1.773 kg |