Laxeldið mun sækja út á haf

Næsta skrefið í íslensku laxeldi verið að stunda úthafseldi í …
Næsta skrefið í íslensku laxeldi verið að stunda úthafseldi í risavöxnum kvíum sem þola mikla ölduhæð og rúma langtum meira magn af fiski en hefðbundnar flotkvíar. Tölvuteikning/Nordlax

Áætlað er að rækta megi um 150.000 tonn af laxi í sjókvíum í íslenskum fjörðum. Laxeldið er núna í mikilli sókn og stefnir í að framleiðslan á þessu ári verði á bilinu 25 til 30.000 tonn, en til að sýna lesendum hve ör vöxturinn er í greininni þá tókst laxeldisstöðvunum að rjúfa 10.000 tonna múrinn árið 2017. Ef sami taktur verður í vexti íslensks laxeldis á komandi árum og áratugum er ljóst að búið verður að fullnýta öll leyfileg eldissvæði áður en langt um líður – og hvað gerist þá?

Friðrik Sigurðsson, ráðgjafi hjá INAQ.
Friðrik Sigurðsson, ráðgjafi hjá INAQ.

Friðrik Sigurðsson er ráðgjafi á sviði fiskeldis og sjávarútvegs hjá norska fyrirtækinu INAQ. Hann lærði sjávarlíffræði við NTNU í Þrándheimi í Noregi og var fyrsti framkvæmdastjóri Landssambands fiskeldisstöðva á árunum 1986 til 1990. Hann hefur komið við hér og þar í greininni, bæði á Íslandi og erlendis. Til viðbótar við ráðgjafarstörfin er hann núna stjórnarmaður hjá Erik Havfiske AS sem er stærsta línubátaútgerð heims.

Að mati Friðriks gæti næsta skrefið í íslensku laxeldi verið að stunda úthafseldi í risavöxnum kvíum sem þola mikla ölduhæð og rúma langtum meira magn af fiski en hefðbundnar flotkvíar. Í Noregi eru þannig kvíar þegar komnar í notkun og lofa góðu. Hann segir það hafa hvatt eldisfyrirtækin þar í landi til að leita út á haf að í dag þarf að greiða tugi milljóna norskra króna til að fá leyfi til að hefja laxeldi inni í fjörðum á meðan leyfi til að stunda úthafseldi eru veitt án endurgjalds. Þá er miklu minni hætta á laxalús og erfðamengun úti á opnu hafi og sterkari vatnsstraumar sem bera burtu úrgang en á móti kemur að sjálfar kvíarnar eru mun dýrari enda þurfa þær að þola meira krefjandi aðstæður. „Framleiðslugetan er hins vegar gríðarleg og getur ein úthafskví rúmað 5.000 til 10.000 tonn af laxi á meðan hefðbundin flotkví rúmar 750 til 1.000 tonn.“

Verðmæti upp á tugi milljarða króna

Friðrik bendir á að ef dæmigerð úthafseldiskví myndi framleiða um 7,500 tonn af laxi á ári þá myndi þurfa um 20 kvíar af þeirri stærð í kringum Ísland til að framleiða 150.000 tonn til viðbótar við þann fisk sem ræktaður væri í fjörðunum. „Ef við miðum við 800 kr. kílóverð og gerum ráð fyrir 100.000 tonna viðbótarframleiðslu árlega þá myndi það jafngilda 80 milljörðum króna í tekjur en til samanburðar er útflutningsverðmæti allra fiskveiða og fiskeldis á Íslandi núna um 250 milljarðar árlega. Auk þess skapar þetta fjölda nýrra starfa við fóðurgerð, viðhald búnaðar, skipa og löndunarþjónustu, vinnslu og pökkun.“

Hefðbundnar kvíar geta framleitt mun minn magn en mögulegar kvíar …
Hefðbundnar kvíar geta framleitt mun minn magn en mögulegar kvíar framtíðarinnar. mbl.is/Helgi Bjarnason

Vitaskuld þarf margt annað að gerast í millitíðinni og þannig nefnir Friðrik að í dag sé seiðaeldi stærsti flöskuhálsinn í íslensku laxeldi og þörf á að auka framleiðslugetu seiðaeldisstöðva til muna á komandi árum. Eins mun þurfa að bæta ýmsa innviði greinarinnar svo hún ráði vel við stóraukna framleiðslu á laxi og sé á sama tíma samkeppnishæf við laxeldi í öðrum löndum.

„Aðstæður til laxeldis á Íslandi eru svipaðar og í Norður-Noregi og framleiðslukostnaður í sjó ekki ósvipaður og þar. Aftur á móti er kostnaðurinn mun hærri á Íslandi þegar kemur að því að taka laxinn úr kvíunum, slátra honum og koma á markað erlendis, en í krafti stærðarhagkvæmni er vinnslu- og flutningsgeta norska laxeldisins allt önnur og kostnaðurinn lægri.“

Með betri markaðssýn

Friðrik bendir á að með tíð og tíma muni íslenskt laxeldi styrkjast og stækka, og með því aukist stærðarhagkvæmnin. Þá hafi íslenskir framleiðendur á margan hátt betri markaðssýn en kollegar þeirra í Noregi: „Laxeldi í Noregi byggist að mestu á því að framleiða mikið magn af lítið unninni afurð en Ísland hefur tækifæri til að vera framar í vöruþróun og menn verða að gæta þess að vera ekki að flytja út hausa, roð og bein sem lítið fæst fyrir heldur nýta tæknina til að flaka og snyrta laxinn vel áður en hann er sendur rakleiðis á markað,“ segir hann og spáir því að staða Íslands gæti orðið svipuð og staða Færeyja sem í dag fá hærra verð en Norðmenn fyrir sinn eldislax.

„Í dag er fiskeldi orðið ein af aðalatvinnugreinum Færeyinga og á u.þ.b. 15 til 20 árum hefur þeim tekist að ná framleiðslu á eldislaxi upp í 80 til 90.000 tonn á ári. Færeyskir framleiðendur fá gott verð fyrir fiskinn og eru meðal annars að selja til landa eins og Kína þar sem Noregur hefur ekki haft jafn auðveldan aðgang.“

Risavaxna úthafseldisstöðin hefur hlotið nafnið Havfarm og verður smíðuð í …
Risavaxna úthafseldisstöðin hefur hlotið nafnið Havfarm og verður smíðuð í Kína. Teikning/Nordlax

Hentug svæði og hentugar leikreglur

Ef úthafseldi á laxi á að verða að veruleika í framtíðinni þyrfti strax í dag að fara að búa í haginn fyrir frekari þróun á því sviði. Friðrik segir stjórnvöld þurfa að hafa skynsamlega framtíðarsýn og ekki sofna á verðinum. „Við erum að komast á það stig að umgjörðin fyrir hefðbundið fiskeldi á Íslandi sé jafn langt á veg komin og í Noregi, en því miður hefur kunnáttuleysi íslenskra stjórnvalda litað umhverfi greinarinnar. Stjórnvöld þurfa líka, fyrr en síðar, að marka stefnu um úthafseldi, með aðkomu hagsmunaaðila og rannsóknarstofnana þar sem m.a. væri gætt vandlega að líffræðilegum og umhverfislegum þáttum og þess freistað að greina hvaða svæði myndu henta best til að stunda úthafseldi s.s. með tilliti til hrygningarsvæða verðmætra fiskstofna og áhrifa á viðkvæm haf- og botnsvæði á borð við kóralrif,“ segir Friðrik og bendir á að sennilega myndu úthafskvíarnar þurfa að vera sunnan og austan við landið svo að lítil sem engin hætta yrði á skemmdum af völdum hafíss. „Eins þarf að taka með í reikninginn að úthafseldið falli vel að umferð bæði fiskiskipa og vöruflutningaskipa, svara ýmsum hafréttarlegum spurningum og greina hvort úthafseldið gæti haft áhrif á fiskveiðar.“

Friðrik gagnrýnir hve langan tíma það tók stjórnvöld að koma á skýrri og vandaðri umgjörð fyrir hefðbundið fiskeldi. „Það gengur ekki að bíða í önnur 30 ár eftir umgjörð utan um úthafseldið, og að bíða eftir því að lausnin komi til okkar frá Noregi. Að taka af skarið núna og sýna gott frumkvæði er það sem þarf ef á að auka framleiðslugetu íslensks laxeldis í framtíðinni,“ segir hann og bætir við að Norðmenn séu stórhuga þegar kemur að úthafseldinu: „Stjórnvöld þar í landi hafa lagt til að um 25.000 ferkílómetrar undan ströndum Noregs verði notaðir undir úthafseldi en það er um fjórðungur af flatarmáil alls Íslands.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »