„Óbreytt ofveiði mun hafa ófyrirséðar afleiðingar“

Virginijus Sinkevičius, framkvæmdastjóri sjávarútvegsmála ESB, og Kristján Þór Júlíusson, landbúnaðar- …
Virginijus Sinkevičius, framkvæmdastjóri sjávarútvegsmála ESB, og Kristján Þór Júlíusson, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, í Brussel í dag. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, fundaði með  Virginijus Sinkevičius, framkvæmdastjóra sjávarútvegsmála Evrópusambandsins, í Brussel í dag, að því er segir á vef stjórnarráðsins. Þar segir að staðan í samningaviðræðum strandríkjanna í makríl, kolmunna og norsk-íslenskri síld auk annarra deilistofna í Norður Atlantshafi hafi verið rædd.

„Á fundinum greindi ég frá því að ég hefði gefið samninganefnd Íslands þau fyrirmæli að við myndum beita okkur fyrir því að koma þessum viðræðum aftur af stað hið fyrsta. Það er allra hagur að þær viðræður skili árangri,“ er haft eftir Kristján Þór á vef stjórnarráðsins.

Bendir stjórnarráðið á að enginn heildstæður samningur er í gildi um stjórn veiða úr stofnunum og veitt er langt umfram ráðgjöf vísindamanna, og að Kristján Þór hafi lagt áherslu á að koma á samkomulagi sem fylgir þeirri ráðgjöf. „Ég lagði ríka áherslu á það náist sem fyrst samkomulag í samningaviðræðum strandríkjanna í deilistofnum. Óbreytt ofveiði úr þessum stofnum mun hafa ófyrirséðar afleiðingar og grafa undan orðspori samningsaðila sem ábyrgra fiskveiðiþjóða,“ segir ráðherrann.

Þá voru einnig rædd samskipti Íslands og Evrópusambandsins á sviði sjávarútvegsmála og kom Kristján Þór á framfæri sjónarmiðum íslenskra stjórnvalda hvað varðar afnám tolla á íslenskum sjávarafurðum. Sagði hann það stórt hagsmunamál fyrir Ísland en um leið Evrópusambandið í ljósi aukinnar fiskneyslu innan sambandsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,22 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Guðborg NS 336 Grásleppunet
Þorskur 326 kg
Ýsa 66 kg
Skarkoli 47 kg
Samtals 439 kg
26.4.24 Oddverji SI 76 Grásleppunet
Grásleppa 1.934 kg
Þorskur 146 kg
Ýsa 42 kg
Skarkoli 30 kg
Ufsi 20 kg
Steinbítur 5 kg
Rauðmagi 1 kg
Samtals 2.178 kg
26.4.24 Hrönn NS 50 Grásleppunet
Grásleppa 2.040 kg
Þorskur 49 kg
Skarkoli 11 kg
Steinbítur 5 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 2.108 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,22 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Guðborg NS 336 Grásleppunet
Þorskur 326 kg
Ýsa 66 kg
Skarkoli 47 kg
Samtals 439 kg
26.4.24 Oddverji SI 76 Grásleppunet
Grásleppa 1.934 kg
Þorskur 146 kg
Ýsa 42 kg
Skarkoli 30 kg
Ufsi 20 kg
Steinbítur 5 kg
Rauðmagi 1 kg
Samtals 2.178 kg
26.4.24 Hrönn NS 50 Grásleppunet
Grásleppa 2.040 kg
Þorskur 49 kg
Skarkoli 11 kg
Steinbítur 5 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 2.108 kg

Skoða allar landanir »