Fram kemur að rekstrarniðurstaða Arnarlax í fyrra hafi verið jákvæð um 139 krónur á hvert framleitt kíló af laxi sem er talsverð breyting frá árinu 2018 þegar niðurstaðan var neikvæð um 161 krónu á hvert framleitt kíló, að því er fram kemur í tilkynningu til norsku kauphallarinnar vegna ársfjórðungsuppgjörs SalMar, stærsta hluthafa Arnarlax.
Þar segir að síðasti ársfjórðungur 2019 hafi verið jákvæður hjá Arnarlaxi meðal annars vegna bættrar nýtingu vinnslugetu í landi, en slátrun laxa jókst um 46% á árinu og er gert ráð fyrir að auka framleiðsluáætlun 2020 úr 10 þúsund tonnum í 12 þúsund tonn. Bent er á að enn þurfi að gera umbætur í virðiskeðjunni, sérstaklega hvað varðar flutningskostnað.
SalMar hefur ákveðið að greiða út arð sem nemur 21 norskri krónu á hlut eða rétt tæpum 2,4 milljörðum norskra króna, jafnvirði 32,6 milljarða íslenskra króna. Var rekstrarniðurstaða fyrirtækisins á fjórða ársfjórðungi 2019 jákvæð um 658,1 milljón norskra króna, jafnvirði tæplega níu milljarða íslenskra króna.
Þá telur SalMar að framboð á atlantshafslaxi á heimsvísu muni aukast um 4% á þessu ári en vegna aukinnar eftirspurnar muni haldast stöðugleiki á markaði og verð hátt. Verð féll nokkuð í byrjun ársins en hefur hækkað um 9,68% síðastliðna viku samkvæmt laxvísitölu Nasdaq.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 26.4.24 | 393,93 kr/kg |
Þorskur, slægður | 26.4.24 | 307,20 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 26.4.24 | 202,84 kr/kg |
Ýsa, slægð | 26.4.24 | 78,20 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 26.4.24 | 110,49 kr/kg |
Ufsi, slægður | 26.4.24 | 133,49 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 26.4.24 | 156,12 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet | |
---|---|
Þorskur | 256 kg |
Grásleppa | 149 kg |
Samtals | 405 kg |
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.303 kg |
Þorskur | 303 kg |
Samtals | 1.606 kg |
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 1.304 kg |
Ýsa | 696 kg |
Steinbítur | 171 kg |
Keila | 77 kg |
Samtals | 2.248 kg |
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.435 kg |
Þorskur | 54 kg |
Rauðmagi | 33 kg |
Skarkoli | 4 kg |
Samtals | 1.526 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 26.4.24 | 393,93 kr/kg |
Þorskur, slægður | 26.4.24 | 307,20 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 26.4.24 | 202,84 kr/kg |
Ýsa, slægð | 26.4.24 | 78,20 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 26.4.24 | 110,49 kr/kg |
Ufsi, slægður | 26.4.24 | 133,49 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 26.4.24 | 156,12 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet | |
---|---|
Þorskur | 256 kg |
Grásleppa | 149 kg |
Samtals | 405 kg |
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.303 kg |
Þorskur | 303 kg |
Samtals | 1.606 kg |
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 1.304 kg |
Ýsa | 696 kg |
Steinbítur | 171 kg |
Keila | 77 kg |
Samtals | 2.248 kg |
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.435 kg |
Þorskur | 54 kg |
Rauðmagi | 33 kg |
Skarkoli | 4 kg |
Samtals | 1.526 kg |