Stofna klasa af íslenskri fyrirmynd í Færeyjum

Stofnaður hefur verið sjávarklasi af íslenskri fyrirmynd í Færeyjum og …
Stofnaður hefur verið sjávarklasi af íslenskri fyrirmynd í Færeyjum og er hann sá fimmti sem stofnaður er utan Íslands. Ljósmynd/Sjókovin

Fimmti sjávarklasinn utan Íslands hefur verið stofnaður í Færeyjum og hefur sá færeyski gert samning um samstarf við þann íslenska, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Íslenska sjávarklasans.

Þá segir að „Íslenski sjávarklasinn mun liðsinna Færeyska sjávarklasanum við uppbyggingu á fyrstu misserum færeyska klasans með því meðal annars að kynna hvernig klasastarfsemin hefur farið fram hérlendis og áherslur Íslenska sjávarklasans á fullvinnslu afurða, eflingu sprotafyrirtækja og nýsköpunar.“

Eins og fyrr segir er sá færeyski sá fimmti í röðinni af erlendum sjávarklösum og hefur áður verið stofnaðir sjávarklasar í Maine-, Alaska, Washington- og Massachusettsríkjum í Bandaríkjunum. Áhugi er einnig innan fleiri bandaríkja þar vestra að stofna klasa að íslenskri fyrirmynd auk þess sem slíkan áhugi er að finna í öðrum heimshlutum, að því er fram kemur í tilkynningunni.

Þá séu sjávarklasarnir tengdir hvort öðrum og getur færeyski  klasinn „nýtt sér þetta tengslanet klasa og liðsinnt jafnframt þannig færeyskum fyrirtækjum sem hyggjast efla útrás.“

„Við erum hæstánægð með að skrifa undir þennan samstarfssamning við Íslenska sjávarklasann. Við höfum fylgst með árangursríkri uppbyggingu hans um langt skeið og við trúum því að í samstarfi við hann og aðra sjávarklasa geti orðið til mikil verðmæti,“ er haft eftir Unni Laksá, framkvæmdastjóra Sjókovans í Færeyjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg
26.4.24 Kristján SH 176 Handfæri
Ufsi 101 kg
Karfi 1 kg
Samtals 102 kg
26.4.24 Ríkey MB 20 Handfæri
Ufsi 91 kg
Karfi 1 kg
Samtals 92 kg
26.4.24 Lea RE 171 Handfæri
Ufsi 181 kg
Samtals 181 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg
26.4.24 Kristján SH 176 Handfæri
Ufsi 101 kg
Karfi 1 kg
Samtals 102 kg
26.4.24 Ríkey MB 20 Handfæri
Ufsi 91 kg
Karfi 1 kg
Samtals 92 kg
26.4.24 Lea RE 171 Handfæri
Ufsi 181 kg
Samtals 181 kg

Skoða allar landanir »