Norðmenn hóta aðgerðum vegna „ólöglegra veiða“ ESB

Odd Emil Ingebrigtsen, sjávarútvegsráðherra Noregs, og Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs.
Odd Emil Ingebrigtsen, sjávarútvegsráðherra Noregs, og Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs. Ljósmynd/Norska stjórnarráðið

Sjávarútvegsráðherra Noregs, Odd Emil Ingebrigtsen, segir óásættanlegt fyrir Noreg að Evrópusambandið hafi einhliða gefið út þorskkvóta við fiskverndarsvæðið við Svalbarða. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Stjórnarráði Noregs. 

Á fimmtudaginn sl. fundaði Ingebrigtsen með Virginijus Sinkevičius, framkvæmdastjóra sjávarútvegsmála ESB. Á fundinum mótmælti Ingebrigtsen harðlega einhliða útgáfu ESB á 28.431 tonna þorskkvóta á áðurnefndu svæði. 

Munu beita landhelgisgæslunni

„Einungis Noregur hefur rétt til þess að stýra fiskveiðum við fiskverndarsvæði Svalbarða og Noregur einn getur úthlutað ESB fiskveiðikvóta á svæðinu,“ sagði Ingebrigtsen. 

Þá telja norsk stjórnvöld kvótaútgáfuna á skjön við fullveldi Noregs og alþjóðlega hafréttarsamninga. 

„Við tökum þessari kvótasetningu mjög alvarlega. Ég hef gert Evrópusambandinu ljóst að öll veiði umfram norskar úthlutanir verði álitnar ólöglegar veiðar og því framfylgt af norsku landhelgisgæslunni,“ segir Ingebrigtsen.

Brexit forsendubrestur

Norðmenn hafa gefið út kvóta, frá því að fiskverndarsvæðið var skilgreint árið 1977, til þjóða á grunvelli veiðireynslu til tíu ára. Á þeim grundvelli hafði ESB verið úthlutað 17.885 tonna þorskkvóta fyrir árið 2021 innan svæðisins. Eftir útgöngu Bretlands úr ESB dróst veiðireynsla Breta frá forsendum til úthlutunar ESB. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 426,40 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,86 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,25 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 114,63 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 163,11 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Bjargfugl RE 55 Grásleppunet
Grásleppa 485 kg
Þorskur 32 kg
Rauðmagi 5 kg
Skarkoli 4 kg
Steinbítur 3 kg
Samtals 529 kg
26.4.24 Kambur HU 24 Grásleppunet
Grásleppa 2.813 kg
Þorskur 262 kg
Skarkoli 32 kg
Ýsa 10 kg
Þykkvalúra 5 kg
Rauðmagi 5 kg
Steinbítur 3 kg
Samtals 3.130 kg
26.4.24 Dagrún HU 121 Grásleppunet
Grásleppa 2.877 kg
Þorskur 167 kg
Skarkoli 47 kg
Ýsa 9 kg
Ufsi 7 kg
Rauðmagi 1 kg
Þykkvalúra 1 kg
Samtals 3.109 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 426,40 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,86 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,25 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 114,63 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 163,11 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Bjargfugl RE 55 Grásleppunet
Grásleppa 485 kg
Þorskur 32 kg
Rauðmagi 5 kg
Skarkoli 4 kg
Steinbítur 3 kg
Samtals 529 kg
26.4.24 Kambur HU 24 Grásleppunet
Grásleppa 2.813 kg
Þorskur 262 kg
Skarkoli 32 kg
Ýsa 10 kg
Þykkvalúra 5 kg
Rauðmagi 5 kg
Steinbítur 3 kg
Samtals 3.130 kg
26.4.24 Dagrún HU 121 Grásleppunet
Grásleppa 2.877 kg
Þorskur 167 kg
Skarkoli 47 kg
Ýsa 9 kg
Ufsi 7 kg
Rauðmagi 1 kg
Þykkvalúra 1 kg
Samtals 3.109 kg

Skoða allar landanir »