Á föstudagskvöld hélt Bergur í fyrsta sinn til veiða undir merkjum Bergs ehf. eftir að Bergur-Huginn, dótturfélag Síldarvinnslunnar, eignaðist það og kom skipið til löndunar í Vestmannaeyjum í morgun. Frá því í nóvember og til marsloka var togarinn leigður Útgerðarfélagi Akureyringa, að því er fram kemur í færslu á vef Síldarvinnslunnar.
Veiðin gekk þokkalega að sögn Páls Steingrímssonar skipstjóra og segir hann á vef móðurfélagsins að veður hafi verið til trafala. „Það var hreint út sagt ógurlega leiðinlegt veður í þessum túr en við vorum á Eldeyjarbanka allan tímann. Stór hluti af veiðislóðinni út af sunnan- og suðvestanverðu landinu hefur verið lokaður vegna hrygningarstopps en það verður opnað aftur á morgun sem betur fer.“
„Við komum með fullfermi eða 60 tonn til löndunar og aflinn er mest ýsa en einnig ufsi, karfi og þorskur. Við reyndum að fá ufsa en hann er brellinn og erfitt að nálgast hann. Það koma ufsaskot hér og þar en þau standa gjarnan afar stutt. Hins vegar er allt fullt af ýsu og gullkarfa. Ýsan er alls staðar og ég er hræddur um ýmsir lendi í vandræðum því úthlutaður ýsukvóti er allt of lítill miðað við magnið sem er á ferðinni,“ segir Páll.
Í færslunni segir að Páll hafi víðtæka reynslu sem skipstjóri og hefur meðal annars stýrt skipum sem gerð hafa verið út til veiða í Barentshafi og við Austur-Grænland frá Þýskalandi, Bretlandi, Póllandi og Portúgal. Hann segir það talsvert annað að veiða á 500 til 600 tonna togara eins og Bergi en á stærri skipum, en stærsti togarinn sem hann hefur stýrt er um 8.000 tonn að stærð.
Haldið verður til veiða að löndun lokinni.
Bæði skip Bergs-Hugins, Vestmannaey VE og Bergey VE, lönduðu fullfermi í Eyjum í gær.