„Hérna eru allar aðstæður til mikillar fyrirmyndar“

Björn Snæbjörnsson og Flosi Eiríksson kváðust ánægðir með starfsaðstæður starfsfólksins …
Björn Snæbjörnsson og Flosi Eiríksson kváðust ánægðir með starfsaðstæður starfsfólksins í nýju frystihúsi Samherja á Dalvík. Ljósmynd/Samherji

Fulltrúar Starfsgreinasambands Íslands kynntu sér starfsemi og aðbúnað starfsmanna í nýju frystihúsi Samherja á Dalvík rétt fyrir helgi. „Hérna eru allar aðstæður til mikillar fyrirmyndar,“ er haft eftir Birni Snæbjörnssyni, formanni Starfsgreinasambands Íslands og Einingar-Iðju, á vef Samherja. Skoðaði hann frystihúsið ásamt Flosa Eiríkssyni, framkvæmdastjóra sambandsins.

Vegna kórónuveirufaraldursins hefur verið óheimilt fyrir utanaðkomandi að koma í frystihúsið og var það fyrst nú að hægt var að kynna starfsemina fyrir fulltrúum sambandsins, en flestir starfsmenn vinnslunnar á Dalvík eru í Einingu-Iðju.

Hólmfríður Sigurðardóttir flokksstjóri og Björn.
Hólmfríður Sigurðardóttir flokksstjóri og Björn. Ljósmynd/Samherji

„Stjórn Einingar-Iðju hafði skoðað húsið áður en vinnsla hófst í fyrra en heimsfaraldurinn hefur komið í veg fyrir heimsókn eins og í dag sem er sannarlega ánægjuleg og langþráð. Öll tæknin hérna inni er mikil og magnað að sjá hversu íslenskt hugvit er áberandi. Maður tekur til dæmis strax eftir hljóðdempun í vinnslusölum, sem er gríðarlega stórt heilsufarsmál. Sömu sögu er að segja um lýsinguna, sem er mjög góð,“ segir Björn.

Störfin sérhæfðari

„Með aukinni tækni hafa flest störf í fiskvinnslu tekið miklum breytingum, sem eru mjög vel sýnilegar hérna. Störfin eru orðin sérhæfðari og um leið líkamlega léttari. Hérna eru allar aðstæður til mikillar fyrirmyndar. Covid-19 gerði það að verkum að starfsfólkið hefur þurft að starfa við mjög svo krefjandi aðstæður og sem betur fer hefur tekist að halda vinnslunni gangandi. Það var gott að tækifæri gafst í dag til að spjalla við starfsfólkið og kynna sér alla tæknina og aðbúnaðinn í húsinu,“ er haft eftir Birni.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, tók á móti Birni og Flosa, en Gestur Geirsson, framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja, og Sigurður Jörgen Óskarsson, yfirverkstjóri á Dalvík, leiddu þá um húsið.

Björn og Flosi ásamt Gesti og Sigurði Jörgen.
Björn og Flosi ásamt Gesti og Sigurði Jörgen. Ljósmynd/Samherji
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »