Fyrsta rafræna öryggishandbókin komin í gagnið

Björn Már Björnsson, 2. stýrimaður og öryggisfulltrúi á Vilhelm Þorsteinssyni …
Björn Már Björnsson, 2. stýrimaður og öryggisfulltrúi á Vilhelm Þorsteinssyni EA, og Jóhann G. Sævarsson, öryggisfulltrúi Samherja, með nýju handbókina. Ljósmynd/Samherji

Fyrsta rafræna öryggis- og þjálfunarhandbókin fyrir íslenskt fiskiskip var virkjuð á dögunum og var það um borð Vilhelmi Þorsteinssyni EA, uppsjávarskipi Samherja. Talið er að þeir kostir sem fylgja rafrænum handbókum er fyrst og fremst að hún uppfærist reglulega í andstöðu við prentaðar bækur.

„Bókin hefur verið sett upp á iPad, öryggisstjóri skipsins getur þá tekið iPadinn með sér í nýliðafræðsluna, æfingarnar, skoðað áhættugátlista og verklagsreglur á vettvangi og fyllt inn í gátlistana samhliða og vistað á öryggisdrif skipsins. Þannig verður öll vinnan í tengslum við öryggi skilvirkari og betri og við náum að halda betur utan um lögbundnu æfingarnar sem og þá vinnu vegna öryggis sem áhöfnin þarf að sinna um borð,“ útskýrir Jóhann G. Sævarsson, öryggisstjóri Samherja, í færslu á vef útgerðarinnar.

„Ég lít á þessa bók sem góða og mikilvæga fjárfestingu til framtíðar, sem staðfestir einnig vel framsýni og velvilja eigendanna sem og allra til öryggismála. Bókin mun sannarlega senda sterk og mikilvæg skilaboð til allra og mun án efa efla enn frekar þá sterku öryggismenningu sem hefur verið að byggjast upp innan fyrirtækisins síðustu árin,“ segir hann.

Vilhelm Þorsteinsson EA.
Vilhelm Þorsteinsson EA. Ljósmynd/Síldarvinnslan

Betur fylgst með ferlum

Gæðastjóri Útgerðarfélags Akureyringa, Sunneva Ósk Guðmundsdóttir, segir í færslunni mikil tækifæri felast í notkun rafrænnar gæðahandbókar og að spjaldtölvan sem hún telur einnig nýtast vel til að halda utan um gæðamál skipsins.

„Kaupendur okkar eru kröfuharðir og því mun rafrænn aðgangur að skjölum auðvelda gæðavinnuna og gera hana skilvirkari og samhliða gefa okkur sem eru í landi tækifæri til að fylgjast enn betur með öllum ferlum. Slíkt styrkir og eflir gæðamálin til muna,“ segir hún.

Sunneva Ósk Guðmundsdóttir, gæðastjóri ÚA.
Sunneva Ósk Guðmundsdóttir, gæðastjóri ÚA. mbl.is/Margrét Þóra Þórsdóttir

„Með því að hafa öryggishandbókina á rafrænu formi getur hver og einn skipverji haft sitt eintak í snjalltæki sínu og því hæg heimatökin að nota frítíma til að auka þekkingu sína á persónulegum öryggismálum og vinnuöryggi um borð. Slíkar bækur ættu að vera um borð í hverju fiskiskipi yfir 15 metrum og því má með sanni segja að þessi fyrsta rafræna öryggishandbók sé góð fyrirmynd fyrir íslenska skipaflotann,“ segir Hilmar Snorrason skólastjóri Slysavarnarskóla sjómanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 426,40 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,86 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,25 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 114,63 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 163,11 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Bobby 13 ÍS 373 Sjóstöng
Þorskur 64 kg
Steinbítur 7 kg
Samtals 71 kg
26.4.24 Bobby 6 ÍS 366 Sjóstöng
Þorskur 172 kg
Samtals 172 kg
26.4.24 Bobby 4 ÍS 364 Sjóstöng
Þorskur 328 kg
Samtals 328 kg
26.4.24 Bobby 9 ÍS 369 Sjóstöng
Þorskur 67 kg
Samtals 67 kg
26.4.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng
Þorskur 326 kg
Samtals 326 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 426,40 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,86 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,25 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 114,63 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 163,11 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Bobby 13 ÍS 373 Sjóstöng
Þorskur 64 kg
Steinbítur 7 kg
Samtals 71 kg
26.4.24 Bobby 6 ÍS 366 Sjóstöng
Þorskur 172 kg
Samtals 172 kg
26.4.24 Bobby 4 ÍS 364 Sjóstöng
Þorskur 328 kg
Samtals 328 kg
26.4.24 Bobby 9 ÍS 369 Sjóstöng
Þorskur 67 kg
Samtals 67 kg
26.4.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng
Þorskur 326 kg
Samtals 326 kg

Skoða allar landanir »