Ólafur kveður Samherja eftir fjóra áratugi

Ólafur Hermannsson á verkstæðinu við Fiskitanga á Akureyri. Hann kveður …
Ólafur Hermannsson á verkstæðinu við Fiskitanga á Akureyri. Hann kveður nú Samherja en hefur starfað þar í tæp 40 ár. Ljósmynd/Samherji

Ólafur Hermannsson, lagerstjóri skipaþjónustu Samherja, hefur starfað hjá fyrirtækinu í tæpa fjóra áratugi og því líklega starfsmaðurinn með mesta starfsaldurinn. Hann lætur nú af störfum, en kveðst ælta að verða eftirmanni sínum innan handar.

„Ég færði mig frá Útgerðarfélagi Akureyringa til Samherja þegar þeir frændur höfðu gert út fyrsta skipið í hálft ár, frystitogarann Akureyrina EA. Á næsta ári verða liðin fjörutíu ár síðan saga Samherja hófst, þannig að ég hef verið hjá fyrirtækinu í rétt rúmlega 39 ár. Þótt ég láti nú formlega af störfum skila ég ekki lyklunum alveg strax, því við Kristján Vilhelmsson útgerðarstjóri höfum sammælst um að ég verði eftirmanni mínum innan handar næstu mánuðina,“ segir Ólafur í færslu á vef Samherja.

Gylfi Svafar Gylfason netamaður á Kaldbaki EA hefur verið ráðinn lagerstjóri skipaþjónustu Samherja og hefur hann senn störf á nýjum vettvangi.

Á sjó í sex ár

Þá segir að Ólafur sé með skipstjórnarréttindi og að hann hafi byrjað sem háseti á frystitogaranum Akureryin EA, sem áður hét Guðsteinn GK. Þaðan fór hann á annan frystitogara, Oddeyrina EA, og svo Margréti EA, þar sem hann gegndi stöðu stýrimann og skipstjóra í afleysingum.

„Ég var á sjónum í sex ár og fór þá í land til að sinna þar stækkandi skipaflota fyrirtækisins, aðallega veiðarfærum og innkaupum sem tengjast veiðarfærum. Við getum sagt að þetta hlutverk hafi verið mitt ævistarf. Á fyrstu árunum skaust ég í einn og einn túr, þegar á því þurfti að halda en eftir því sem flotinn stækkaði jukust umsvifin eðlilega í skipaþjónustunni í landi,“ segir hann.

Áhöfninn á Akureyrinni EA árið 1984: Fv.; Arngrímur Brynjólfsson, Ólafur …
Áhöfninn á Akureyrinni EA árið 1984: Fv.; Arngrímur Brynjólfsson, Ólafur Ingi Hermannsson, Jón Ívar Halldórsson, Páll Valdimarsson, Sveinbjörn Hjörleifsson, Sigurður Sigurpálsson, Konráð Alfreðsson, Guðmundur J. Halldórsson, Þorsteinn Pálsson, Oddur Árnason, Hreinn Pálmason, Þorsteinn Vilhelmsson, Hákon Þröstur Guðmundsson, Hrafn Ingvason, Friðrik Árnason, Halldór Valur Þorsteinsson, Knútur Eiðsson, Ásgrímur Sigurðsson, Kristinn Pálsson, Pétur Pálmason, Brynjólfur Jónsson, Heiðar Sigurbjörnsson, Kristján Viktor Kristjánsson og Þórólfur Ingvarsson Ljósmynd/Samherji

Ólafur segir veiðarfæri hafa tekið miklum breytingum á þeim tíma sem hann hefur starfað í greininni og að Samherji hafi sýnt mikinn vilja til að nýta nýjustu lausnir.

„Þegar nýjungar hafa litið dagsins ljós í veiðarfærum má fullyrða að Samherji hafi verið með fyrstu útgerðum til að kynna sér þær og meta. Eigendurnir hafa alltaf samþykkt óskir skipstjóra og þeirra sem eru að vinna við veiðarfærin. Ég hreinlega minnist þess ekki að einhverjar hömlur hafi verið settar í þeim efnum af hálfu stjórnendanna, sem lýsir vel hugsunarhætti þeirra og stefnu í útgerðinni. Veiðarfæri eru dýr, sömuleiðis togvírar og ýmsar járnavörur og því þarf að taka vel ígrundaðar ákvarðanir.“

Á köflum erilsamt

„Þetta er á köflum nokkuð erilsamt starf,“ segir Ólafur. „Útgerð Samherja hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum, núna eru gerðir út nokkrir ísfisktogarar og nýverið bættist við frystitogari. Ísfiskskipin þurfa öðruvísi þjónustu en frystiskipin, sem eru kannski úti í nokkrar vikur en ísfiskskipin eru úti í nokkra sólarhringa. En allt hefst þetta, auðvitað með góðu samstarfi við áhafnir skipanna og svo þeirra sem vinna í landi við að þjónusta flotann.“

Í færslunni kveðst hann kveðja Samherja sáttur „enda úrvals fólk sem starfar hjá fyrirtækinu. Vöxturinn hefur verið ævintýralegur og þegar maður hugsar til baka er margs að minnast. Sjálfsagt verður svolítið skrýtið í fyrstu að vakna á morgnana og þurfa ekki að mæta til vinnu en ég verð hérna með annan fótinn.“

Ólafur að störfum árið . Hann viðurkennir að þetta hafi …
Ólafur að störfum árið . Hann viðurkennir að þetta hafi á tímum verið erilsamt starf. Ljósmynd/Samherji
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »