Slippurinn Akureyri opnar vöruþróunarsetur

Páll Kristjánsson, framkvæmdastjóri Slippsins á Akureyri, segir vöruþróunarsetrið rökrétt skref …
Páll Kristjánsson, framkvæmdastjóri Slippsins á Akureyri, segir vöruþróunarsetrið rökrétt skref í sókn félagsins. Ljósmynd/Slippurinn

Slippurinn Akureyri hefur sett á laggirnar vöruþróunarsetur, þar sem sérhæfðir starfsmenn munu vinna að hönnun og þróun margvíslegra tæknilausna í matvælavinnslu. Undirbúningurinn að setrinu hefur staðið yfir í rúmt ár, að því er fram kemur í tilkynningu á vef félagsins.

Páll Kristjánsson, framkvæmdastjóri Slippsins, segir í tilkynningunni nýsköpunar- og þróunarstarf lykilinn að framþróun félagsins á komandi árum. Verkefni vöruþróunarsetursins verði fjölbreytt, sem komi til með að skila afurðum á markað og opna nýjar dyr að frekari verkefnum

Í júlí síðastliðnum festi Slippurinn kaup á fasteignum, vélum, tækjum og hluta hönnunar Martaks í Grindavík, sem hefur boðið tæknilausnir fyrir rækjuiðnaðinn og á síðustu árum sinnt sambærilegum lausnum fyrir vinnslu á hvítfiski.

Eldisfisk og hvítfisk

„Vöruþróunarsetrið er rökrétt skref í þá átt að sækja fram, enda hefur verkefnum í landvinnslu fjölgað mikið hjá okkur á undanförnum misserum. Ég nefni í þessu sambandi gríðarlega uppbyggingu í fiskeldi víðs vegar um land, sem við munum kappkosta að þjónusta og koma að nýsmíði, sem og í annarri matvælavinnslu,“ útskýrir Páll.

„Þegar eru í gangi vöruþróunarverkefni sem lúta að vinnslu á bæði hvítfiski og eldisfiski og í vöruþróunarsetrinu verður meðal annars horft til þess að þróa tæknilausnir Martaks enn frekar sem og að samþættingu vörulína, svo sem hugbúnaðarstýringar og fleira. Við sjáum sömuleiðis fyrir okkur aukið samstarf við frumkvöðla og aðra aðila sem koma að vöruþróun með einum eða öðrum hætti,“ segir hann.

Aukin áhersla er lögð á vöruþróun með nýju setri.
Aukin áhersla er lögð á vöruþróun með nýju setri. Ljósmynd/Slippurinn

Hann segir félagið hafa sannað að það sé í fremstu röð í sjávarútvegi á alþjóðavísu og vísar til þess að tekjur vegna erlendra verkefna hafi vaxið ört undanfarin ár.

„Slippurinn er fremsta þjónustustöð skipa á Íslandi og mun vera það áfram. Hérna starfa um 150 manns en einnig erum við í samstarfi við fjölmörg fyrirtæki til þess að geta boðið upp á heildarlausnir í matvælavinnslu. Hraðinn í vöruþróun er mikill og við slíkar aðstæður sannast mikilvægi þekkingar og samvinnu. Vöruþróunarsetrinu er einmitt ætlað að vera öflugur hlekkur í þeirri mikilvægu keðju,“ segir Páll.

mbl.is
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 29.3.23 485,48 kr/kg
Þorskur, slægður 29.3.23 589,19 kr/kg
Ýsa, óslægð 29.3.23 387,56 kr/kg
Ýsa, slægð 29.3.23 256,77 kr/kg
Ufsi, óslægður 29.3.23 236,80 kr/kg
Ufsi, slægður 29.3.23 309,05 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 27.1.23 237,00 kr/kg
Djúpkarfi 8.3.23 213,00 kr/kg
Gullkarfi 29.3.23 332,46 kr/kg
Litli karfi 29.3.23 0,23 kr/kg

Fleiri tegundir »

29.3.23 Geir ÞH-150 Dragnót
Skarkoli 1.516 kg
Steinbítur 241 kg
Þorskur 131 kg
Sandkoli 65 kg
Samtals 1.953 kg
29.3.23 Bárður SH-811 Þorskfisknet
Þorskur 707 kg
Ýsa 475 kg
Ufsi 180 kg
Langa 89 kg
Skarkoli 44 kg
Steinbítur 3 kg
Samtals 1.498 kg
29.3.23 Þórir SF-077 Botnvarpa
Þorskur 26.894 kg
Ufsi 13.319 kg
Ýsa 10.215 kg
Samtals 50.428 kg

Skoða allar landanir »

Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 29.3.23 485,48 kr/kg
Þorskur, slægður 29.3.23 589,19 kr/kg
Ýsa, óslægð 29.3.23 387,56 kr/kg
Ýsa, slægð 29.3.23 256,77 kr/kg
Ufsi, óslægður 29.3.23 236,80 kr/kg
Ufsi, slægður 29.3.23 309,05 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 27.1.23 237,00 kr/kg
Djúpkarfi 8.3.23 213,00 kr/kg
Gullkarfi 29.3.23 332,46 kr/kg
Litli karfi 29.3.23 0,23 kr/kg

Fleiri tegundir »

29.3.23 Geir ÞH-150 Dragnót
Skarkoli 1.516 kg
Steinbítur 241 kg
Þorskur 131 kg
Sandkoli 65 kg
Samtals 1.953 kg
29.3.23 Bárður SH-811 Þorskfisknet
Þorskur 707 kg
Ýsa 475 kg
Ufsi 180 kg
Langa 89 kg
Skarkoli 44 kg
Steinbítur 3 kg
Samtals 1.498 kg
29.3.23 Þórir SF-077 Botnvarpa
Þorskur 26.894 kg
Ufsi 13.319 kg
Ýsa 10.215 kg
Samtals 50.428 kg

Skoða allar landanir »