Skipverjar í bát Arnarlax, Boggu ljósu, urðu varir við reyk þegar þeir sátu í káetu bátsins fyrr í dag. Slökkvilið Patreksfjarðar, Tálknafjarðar og Bíldudals var kallað út klukkan 13.59.
Engan sakaði og var báturinn dreginn til Tálknafjarðarhafnar.
Í samtali við mbl.is segir Gunnar Sean Eggertsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á Patreksfirði, að enginn eldur hafi verið sjáanlegur í bátnum.
„Við fórum um borð og fórum með hitamyndavélar út um allt og reykræstum bátinn og það var aðallega reykur í ljósavélarrými en enginn sjáanlegur eldur,“ segir Gunnar. Líklegt sé að reykurinn hafi komið frá pústi ljósavélarinnar.
Slökkviliðið á Tálknafirði verður með vakt á svæðinu fram eftir kvöldi til þess að tryggja að enginn eftirábruni verði.
„[Skipverjar] fóru allir í galla og lokuðu öllum lúgum sem á að loka og brugðust rétt við. Það var skip þarna rétt við hliðina á þeim sem kom strax til þeirra og svo var annar stærri þjónustubátur sem er með öfluga slöngu sem sigldi strax á staðinn. Það var ákveðið að draga hann bara strax í land. Þeir drápu náttúrulega á öllu og slógu út rafmagni og öllu saman áður en þeir fóru,“ segir Gunnar.
Nokkurn tíma tók að draga bátinn að landi en um klukkan 16.15 var aðgerðum lokið að mestu.
„Það var enginn laus eldur og svo þegar við vorum búnir að reykræsta þá kom ekki meiri reykur,“ segir Gunnar.
Mikið viðbragð var sett af stað vegna útkallsins en Gunnar segir slökkviliðin þrjú vinna sem eitt. Betra sé að hafa fleiri en færri á staðnum.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 24.9.23 | 481,38 kr/kg |
Þorskur, slægður | 24.9.23 | 529,80 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 24.9.23 | 248,34 kr/kg |
Ýsa, slægð | 24.9.23 | 241,69 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 24.9.23 | 277,81 kr/kg |
Ufsi, slægður | 24.9.23 | 303,65 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 26.7.23 | 10,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.9.23 | 301,00 kr/kg |
Gullkarfi | 24.9.23 | 259,19 kr/kg |
Litli karfi | 21.9.23 | 13,00 kr/kg |
24.9.23 Sandfell SU 75 Lína | |
---|---|
Þorskur | 77 kg |
Keila | 51 kg |
Ufsi | 20 kg |
Grálúða | 10 kg |
Karfi | 1 kg |
Samtals | 159 kg |
24.9.23 Straumey EA 50 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.992 kg |
Ýsa | 1.838 kg |
Steinbítur | 46 kg |
Samtals | 5.876 kg |
24.9.23 Áskell ÞH 48 Botnvarpa | |
---|---|
Ýsa | 29.030 kg |
Þorskur | 21.922 kg |
Karfi | 10.392 kg |
Skarkoli | 1.558 kg |
Steinbítur | 1.112 kg |
Þykkvalúra | 661 kg |
Ufsi | 328 kg |
Langa | 306 kg |
Samtals | 65.309 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 24.9.23 | 481,38 kr/kg |
Þorskur, slægður | 24.9.23 | 529,80 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 24.9.23 | 248,34 kr/kg |
Ýsa, slægð | 24.9.23 | 241,69 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 24.9.23 | 277,81 kr/kg |
Ufsi, slægður | 24.9.23 | 303,65 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 26.7.23 | 10,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.9.23 | 301,00 kr/kg |
Gullkarfi | 24.9.23 | 259,19 kr/kg |
Litli karfi | 21.9.23 | 13,00 kr/kg |
24.9.23 Sandfell SU 75 Lína | |
---|---|
Þorskur | 77 kg |
Keila | 51 kg |
Ufsi | 20 kg |
Grálúða | 10 kg |
Karfi | 1 kg |
Samtals | 159 kg |
24.9.23 Straumey EA 50 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.992 kg |
Ýsa | 1.838 kg |
Steinbítur | 46 kg |
Samtals | 5.876 kg |
24.9.23 Áskell ÞH 48 Botnvarpa | |
---|---|
Ýsa | 29.030 kg |
Þorskur | 21.922 kg |
Karfi | 10.392 kg |
Skarkoli | 1.558 kg |
Steinbítur | 1.112 kg |
Þykkvalúra | 661 kg |
Ufsi | 328 kg |
Langa | 306 kg |
Samtals | 65.309 kg |