Skapa enn meiri verðmæti með fullvinnslu

Jörundur Garðarsson er duglegur að stunda fjallgöngur, 75 ára gamall, …
Jörundur Garðarsson er duglegur að stunda fjallgöngur, 75 ára gamall, og þykir Hafkalkið hjálpa. Ljósmynd/Aðsend

Jörundur Garðarsson er framkvæmdastjóri Hafkalks en félagið framleiðir hágæða fæðubótarefni úr kalkþörungum og þykja sumar vörur Hafkalks allra meina bót. Árið 2008 var Jörundur ráðinn til Íslenska kalkþörungafélagsins á Bíldudal til að gegna stöðu gæðastjóra og í framhaldinu hóf hann að leita leiða, í samvinnu við aðra heimamenn, til að skapa meiri verðmæti úr kalkþörungunum.

„Kalkþörungar eru rauðþörungar sem lifa á 5 til 30 metra dýpi. Kynslóð fram af kynslóð hafa safnast lög af kalkþörungum á sjávarbotninum og sums staðar hér í Arnarfirði eru þessi lög orðin þykk og eiga að duga til nýtingar í langan tíma,“ útskýrir Jörundur í viðtali í síðasta blaði 200 mílna. Hann bætir við að þau kalkþörungalög sem Bílddælingar nýta hafi myndast á mörgum öldum og árþúsundum.

Grunnvara fyrirtækisins heitir einfaldlega Hafkalk og samanstendur af fíngerðu og hreinu kalkþörungadufti í hylkjum. Jörundur segir reynsluna sýna að þessi vara örvi m.a. vöxt hárs og nagla og að regluleg notkun hafi hjálpað mörgum að lina eða losna við liðverki. Eitt og sér er kalkþörungaduftið ríkt að kalsíum og magnesíum, en einnig stein- og snefilefnum á borð við járn, selen, sink, mangan, kalíum og joð.

Lesa má viðtalið í heild sinni í síðasta blaði 200 mílna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 12.5.24 419,05 kr/kg
Þorskur, slægður 12.5.24 542,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 12.5.24 320,27 kr/kg
Ýsa, slægð 12.5.24 164,67 kr/kg
Ufsi, óslægður 12.5.24 144,84 kr/kg
Ufsi, slægður 12.5.24 220,83 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 12.5.24 193,41 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

11.5.24 Vala HF 5 Grásleppunet
Grásleppa 2.803 kg
Þorskur 31 kg
Rauðmagi 12 kg
Samtals 2.846 kg
11.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 1.082 kg
Þorskur 648 kg
Steinbítur 352 kg
Keila 62 kg
Ufsi 5 kg
Skarkoli 3 kg
Samtals 2.152 kg
11.5.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.910 kg
Steinbítur 1.951 kg
Ýsa 1.266 kg
Hlýri 116 kg
Skarkoli 66 kg
Langa 40 kg
Ufsi 30 kg
Karfi 1 kg
Samtals 13.380 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 12.5.24 419,05 kr/kg
Þorskur, slægður 12.5.24 542,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 12.5.24 320,27 kr/kg
Ýsa, slægð 12.5.24 164,67 kr/kg
Ufsi, óslægður 12.5.24 144,84 kr/kg
Ufsi, slægður 12.5.24 220,83 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 12.5.24 193,41 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

11.5.24 Vala HF 5 Grásleppunet
Grásleppa 2.803 kg
Þorskur 31 kg
Rauðmagi 12 kg
Samtals 2.846 kg
11.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 1.082 kg
Þorskur 648 kg
Steinbítur 352 kg
Keila 62 kg
Ufsi 5 kg
Skarkoli 3 kg
Samtals 2.152 kg
11.5.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.910 kg
Steinbítur 1.951 kg
Ýsa 1.266 kg
Hlýri 116 kg
Skarkoli 66 kg
Langa 40 kg
Ufsi 30 kg
Karfi 1 kg
Samtals 13.380 kg

Skoða allar landanir »