Stjórnvöld í Norður-Kóreu hafa slitið öllum hernaðar- og stjórnmálatengslum við nágranna sína í suðri, Suður-Kóreu. Í tilkynningu vegna málsins var sagt að Suður-Kórea væri „óvinurinn“.

Öllum tengslum var slitið á hádegi að staðartíma, klukkan þrjú í nótt að íslenskum tíma. Það þýðir meðal annars að samskiptalína á sameiginlegri skrifstofu við landamærin er tekin úr notkun, að því er fram kom í frétt í ríkisútvarpi Norður-Kóreu.
Nágrannarnir eiga enn í stríði en stríðinu á Kóreuskaga er ekki formlega lokið. Stríðinu lauk tæknilega séð með vopnahléi árið 1953 en friðarsamkomulag var aldrei undirritað.
Fjölmiðlar í Suður-Kóreu segja að símtölum þarlendra stjórnvalda til nágranna sinna hafi ekki verið svarað undanfarna tvo daga.
Kim Yo-jong, systir Kim Jong-un leiðtoga Norður-Kóreu, hafði áður hótað því að slíta hernaðarsamkomulagi milli ríkjanna og kvartaði undan því að fá áróðursbæklinga úr suðri yfir landamærin.
Stjórnvöld í norðrinu hafa enn fremur sagst ætla að grípa til aðgerða sem verði til þess að nágrannar þeirra í suðri þjáist.