Skutu langdrægri eldflaug á loft í tilraunaskyni

Norður-Kórea | 18. desember 2023

Skutu langdrægri eldflaug á loft í tilraunaskyni

Norður-Kóreumenn skutu í morgun á loft háþróaðri langdrægri eldflaug í tilraunaskyni.

Skutu langdrægri eldflaug á loft í tilraunaskyni

Norður-Kórea | 18. desember 2023

Maður gengur gengur fram hjá sjónvarpsskjá í Suður-Kóreu þar sem …
Maður gengur gengur fram hjá sjónvarpsskjá í Suður-Kóreu þar sem sagt er frá tilraunaskotinu í morgun. AFP/Anthony Wallace

Norður-Kóreumenn skutu í morgun á loft háþróaðri langdrægri eldflaug í tilraunaskyni.

Norður-Kóreumenn skutu í morgun á loft háþróaðri langdrægri eldflaug í tilraunaskyni.

Flaugin, sem getur náð alla leið til Bandaríkjanna og er sú tæknilegasta úr vopnabúri Norður-Kóreu, bætist þar með í hóp metfjölda vopna sem hefur verið prófaður í landinu á þessu ári, með tilheyrandi fordæmingu fjölda ríkja.

Suðurkóresk stjórnvöld segja að eldsneyti flaugarinnar hafi verið í föstu formi frekar en fljótandi. Fyrir vikið er auðveldara að flytja hana á milli staða og að skjóta henni á loft.

AFP/Kazuhiro Nogi

Þetta var í þriðja sinn sem Norður-Kóreumenn skjóta flaug sem þessari á loft. Síðast var það gert í apríl og júlí. Þær voru af tegundinni Hwasong-18, að sögn norðurkóreskra stjórnvalda.

Bandaríkjamenn, Suður-Kórea og Japan hafa öll fordæmt tilraunaskotið í morgun. Þau segja það brot á samþykkt öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og að Kóreuskaginn sé ekki eins öruggur fyrir vikið.

mbl.is