151 kórónuveirusmit hefur greinst innanlands eftir sýnatöku gærdagsins. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á covid.is. Þrjú virk smit greindust við landamæraskimun.

Er það næstmesti fjöldi innanlandssmita sem greinst hefur á einum sólarhring hér á landi en þau voru 154 á föstudaginn fyrir tæpri viku.
Af þeim sem greindust í gær voru 68 í sóttkví við greiningu, rúmlega 45%.
Alls eru nú 1.388 í einangrun og 1.988 í sóttkví. Átján eru á sjúkrahúsi með veiruna, en þeir voru sextán í gær.
Af jákvæðum sýnum í gær greindust 133 í einkennasýnatöku og 18 við sóttkvíar- og handahófsskimanir. 94 eru fullbólusettir og 55 óbólusettir. Þá er bólusetning hafin hjá tveimur.
Uppsafnaður fjöldi innlagna á gjörgæslu vegna Covid-19 hefur aukist um tvo síðan í gær.
Fréttin hefur verið uppfærð.