Kim Yo Jong, systir Kims Jong-uns, leiðtoga Norður-Kóreu, segir það „aðdáunarvert“ af stjórnvöldum í Suður-Kóreu að leggja til að bundinn verði formlegur endi á Kóreustríðið.

Hún krefst þess aftur á móti að Suður-Kórea láti fyrst af „fjandsamlegri stefnu“ gagnvart Norður-Kóreu.
Með ummælunum, sem birtust á norðurkóreska ríkismiðlinum KCNA, brást hún við nýlegum orðum Moons Jae-ins, forseta Suður-Kóreu, um að lýsa opinberlega yfir lokum Kóreustríðsins frá árunum 1950 til 1953 sem lauk með vopnahléi en ekki friðarsamningi.
Tæknilega séð hafa þjóðirnar tvær því verið í stríði í rúmlega hálfa öld.
Moon sagði á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna fyrr í vikunni að með því að lýsa yfir endalokum Kóreustríðsins væri hægt að ná árangri í að fækka kjarnorkuvopnum á Kóreuskaganum.
Kim, sem er pólitískur ráðgjafi Kims Jong-uns, sagði hugmyndina „aðdáunarverða“ en bætti við að yfirlýsing sem þessi þegar „tvöfalt siðgæði, fordómar og fjandsamleg stefna“ Suður-Kóreumanna væru enn við lýði „þjónaði engum tilgangi“.