1.567 kórónuveirusmit greindust innanlands

Kórónuveiran Covid-19 | 27. janúar 2022

1.567 kórónuveirusmit greindust innanlands í gær og hafa þau aldri verið fleiri á einum degi. 59% voru í sóttkví við greiningu. 14 daga nýgengi innanlandssmita á hverja 100.000 íbúa er nú 4.968 og hefur það hækkað síðan á þriðjudag þegar nýgengið var 4.883. 

Frá sýnatöku vegna Covid-19 á Suðurlandsbraut.
Frá sýnatöku vegna Covid-19 á Suðurlandsbraut. mbl.is/Kristinn Magnússon

1.567 kórónuveirusmit greindust innanlands í gær og hafa þau aldri verið fleiri á einum degi. 59% voru í sóttkví við greiningu. 14 daga nýgengi innanlandssmita á hverja 100.000 íbúa er nú 4.968 og hefur það hækkað síðan á þriðjudag þegar nýgengið var 4.883. 

1.567 kórónuveirusmit greindust innanlands í gær og hafa þau aldri verið fleiri á einum degi. 59% voru í sóttkví við greiningu. 14 daga nýgengi innanlandssmita á hverja 100.000 íbúa er nú 4.968 og hefur það hækkað síðan á þriðjudag þegar nýgengið var 4.883. 

Þetta er nýtt met í fjölda smita, en áður hafði mest greinst 1.558 smit á einum degi. Var það á mánudaginn í þessari viku. 

4.865 einkennasýni voru greind í gær og 2.199 sóttkvíarsýni.

11.593 eru í einangrun. 

Í 1.160 tilvikum hefur fólk smitast aftur eftir að hafa áður sýkst. 

43 smit greindust við landamærin en 593 sýni voru greind þar. Nýgengið á landamærunum hækkaði á milli daga en það var 327 á þriðjudag og 593 í gær.

33 sjúk­ling­ar liggja á Land­spít­ala með Covid-19. Þrír þeirra eru á gjör­gæslu og tveir af þeim í önd­un­ar­vél. Kona á níræðisaldri lést af völdum Covid-19 í gær, að því er fram kemur á vefsíðu Landspítala. 

mbl.is