Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, hafði yfirumsjón með tilraunaskoti á stærstu langdrægu eldflaug þjóðarinnar.

Með því vildi hann tryggja að þjóð hans væri tilbúin fyrir „langvarandi deilu“ við Bandaríkin, að sögn ríkisfjölmiðils Norður-Kóreu.
Eldflauginni af tegundinni ICBM var skotið á loft í gær og var þetta í fyrsta sinn sem slíkri flaug er skotið á loft í landinu síðan árið 2017.
Svo virðist sem hún hafi ferðast lengra og hærra en nokkrar aðrar flaugar landsins til þessa, þar á meðal lengra en einni sem er smíðuð til að geta náð til meginlands Bandaríkjanna.
Tilraunaskot „nýrrar tegundar langdrægar eldflaugar“ var framkvæmt undir „beinni leiðsögn“ leiðtogans Kims, sagði í frétt KCNA.