Birgitta Líf Björnsdóttir klæddist Fendi-kjól þegar hún hélt upp á afmæli sitt á skemmtistaðnum Bankastræti Club í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi. Birgitta er eigandi staðarins en einnig markaðsstjóri World Class og raunveruleikastjarna í þáttunum LXS.

Kjóllinn sem Birgitta klæddist er úr samstarfslínu Fendi og Skims, en Skims er í eigu raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian. Línan kom út á síðasta ári og kom í takmörkuðu upplagi.
Bleiki kjóllinn sem Birgitta klæddist er með stuttum ermum og rúllukraga. Öll línan er uppseld í verslunum en hægt er að finna kjólinn á endursölusíðum fyrir notaðar tískuvörur, eins og til dæmis á Vestiaire Collective og Luxury Snob en þar kostar hann á bilinu 750 þúsund til 1.700 bandaríkjadali, sem eru um 100 til 250 þúsund krónur á gengi dagsins í dag.
Birgitta festi kaup á kjólnum í fyrra þegar hún fór til Lundúna. Hún geymdi kjólinn í tæplega ár til að geta klæðst honum í 30 ára afmælinu sínu.