Alma og Ed Weeks giftu sig á Spáni

Brúðkaup | 14. september 2023

Alma og Ed Weeks giftu sig á Spáni

Tónlistarkonan Alma Guðmundsdóttir, eða Alma Goodman eins og hún kallar sig, gekk í hjónaband með leikaranum Ed Weeks á Spáni á dögunum. Alma hefur nú einnig tekið upp eftirnafnið Weeks á Instagram. 

Alma og Ed Weeks giftu sig á Spáni

Brúðkaup | 14. september 2023

Ed Weeks og Alma Guðmundsdóttir eru hjón. Alma birti þessa …
Ed Weeks og Alma Guðmundsdóttir eru hjón. Alma birti þessa mynd á Instagram-síðu sinni. Skjáskot/Instagram

Tónlistarkonan Alma Guðmundsdóttir, eða Alma Goodman eins og hún kallar sig, gekk í hjónaband með leikaranum Ed Weeks á Spáni á dögunum. Alma hefur nú einnig tekið upp eftirnafnið Weeks á Instagram. 

Tónlistarkonan Alma Guðmundsdóttir, eða Alma Goodman eins og hún kallar sig, gekk í hjónaband með leikaranum Ed Weeks á Spáni á dögunum. Alma hefur nú einnig tekið upp eftirnafnið Weeks á Instagram. 

Alma og hinn breski Ed Weeks trúlofuðu sig í fyrra. „Besta og auðveldasta ákvörðun ég hef nokkurn tímann tekið,“ skrifaði Alma þegar hún greindi frá trúlofuninni. 

Weeks er nokkuð þekktur leikari í Hollywood en hann fór með stórt hlutverk í gamanþáttunum The Mindy Project. Alma sem hefur gert það gott sem lagahöfundur erlendis og meðal annars samið fyrir Katy Perry. Hún kom fyrst fram á sjónarsviðið með stelpuhljómsveitinni Nylon. Hljómsveitin kom einmitt aftur saman á menningarnótt í lok ágúst. 

Smartland óskar hjónunum til hamingju!

mbl.is