Daníel og Berglind létu pússa sig saman

Brúðkaup | 6. desember 2023

Daníel og Berglind létu pússa sig saman

Berglind Ósk Guðmundsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Daníel Matthíasson verkefnastjóri gengu í hjónaband á full­veld­is­dag­inn, 1. des­em­ber. Hjónin deildu fallegum brúðkaupsmyndum á samfélagsmiðlum. 

Daníel og Berglind létu pússa sig saman

Brúðkaup | 6. desember 2023

Daníel Matthíasson og Berglind Ósk Guðmundsdóttir lukkuleg á brúðkaupsdaginn.
Daníel Matthíasson og Berglind Ósk Guðmundsdóttir lukkuleg á brúðkaupsdaginn. Skjáskot/Instagram

Berglind Ósk Guðmundsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Daníel Matthíasson verkefnastjóri gengu í hjónaband á full­veld­is­dag­inn, 1. des­em­ber. Hjónin deildu fallegum brúðkaupsmyndum á samfélagsmiðlum. 

Berglind Ósk Guðmundsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Daníel Matthíasson verkefnastjóri gengu í hjónaband á full­veld­is­dag­inn, 1. des­em­ber. Hjónin deildu fallegum brúðkaupsmyndum á samfélagsmiðlum. 

Berglind er þingmaður í Norðaust­ur­kjör­dæmi og voru myndirnar sem hjónin birtu frá brúðkaupsdeginum teknar á Ráðhústorginu á Akureyri. Berglind var í látlausum fötum, en hún var í hvítum bol og ljósbrúnu pilsi. Með í för voru börnin tvö. 

Lífið leikur við hjónin þessi misserin. Berglind og Daníel trúlofuðu sig í september í fyrra en í haust eignuðust þau son. Fyrir átti Berglind eina dóttur. 

Smartland óskar hjónunum til hamingju!

mbl.is