Sísí og Biggi lögga gengu í það heilaga

Brúðkaup | 14. nóvember 2023

Sísí og Biggi lögga gengu í það heilaga

Birgir Örn Guðjónsson, betur þekktur sem Biggi lögga, og listakonan Sísí Ingólfsdóttir eru orðin hjón. 

Sísí og Biggi lögga gengu í það heilaga

Brúðkaup | 14. nóvember 2023

Birgir Örn Guðjónsson og Sísí Ingólfsdóttir eru orðin hjón.
Birgir Örn Guðjónsson og Sísí Ingólfsdóttir eru orðin hjón. Samsett mynd

Birgir Örn Guðjónsson, betur þekktur sem Biggi lögga, og listakonan Sísí Ingólfsdóttir eru orðin hjón. 

Birgir Örn Guðjónsson, betur þekktur sem Biggi lögga, og listakonan Sísí Ingólfsdóttir eru orðin hjón. 

Biggi og Sísí gengu í það heilaga síðastliðinn laugardag, en það var Bjarni Sæmundsson, leikari og athafnastjóri hjá Siðmennt, sem gaf þau saman í Fríkirkjunni í Reykjavík. 

„Laugardagurinn var svolítið mikið skemmtilegur og fullkominn á allan hátt. Og partýið er rétt að byrja. Dásamlegur dagur með börnunum okkar sjö og okkar nánustu. Hversu ríkur getur einn maður verið. Ástin og lífið krakkar,“ skrifaði Biggi við Facebook-færslu sem birtist í gær.

Með færslunni birti hann fallegar myndir frá deginum sem virðist hafa verið afar vel heppnaður.

Fundu ástina á síðasta ári

Biggi og Sísí fundu ástina í örmum hvor annars á síðasta ári og opinberuðu samband sitt svo á Facebook í ársbyrjun. Nokkrum mánuðum síðar, eða í maí, ákváðu þau að taka næsta skref og festu kaup á húsi saman. Stuttu síðar, eða í júní, fór Biggi á skeljarnar og bað Sísíar.

Sísí á fjögur börn úr fyrra sambandi og stjúpdóttur á meðan Biggi á tvö börn úr fyrra sambandi. 

Smartland óskar þeim innilega til hamingju með ástina!

mbl.is