Alda Karen og Katherine giftu sig á leyniströnd á Havaí

Brúðkaup | 5. október 2023

Alda Karen og Katherine giftu sig á leyniströnd á Havaí

Fyrirlesarinn og ráðgjafinn Alda Karen Hjaltalín Lopez gekk í hjónaband með Katherine Hjaltalín Lopez þann 4. ágúst síðastliðinn við fallega athöfn á leyniströnd á Havaí. 

Alda Karen og Katherine giftu sig á leyniströnd á Havaí

Brúðkaup | 5. október 2023

Alda Karen Hjaltalín Lopez og Katherine Hjaltalín Lopez gengu í …
Alda Karen Hjaltalín Lopez og Katherine Hjaltalín Lopez gengu í það heilaga á leyniströnd á Havaí. Ljósmynd/Facebook.com

Fyrirlesarinn og ráðgjafinn Alda Karen Hjaltalín Lopez gekk í hjónaband með Katherine Hjaltalín Lopez þann 4. ágúst síðastliðinn við fallega athöfn á leyniströnd á Havaí. 

Fyrirlesarinn og ráðgjafinn Alda Karen Hjaltalín Lopez gekk í hjónaband með Katherine Hjaltalín Lopez þann 4. ágúst síðastliðinn við fallega athöfn á leyniströnd á Havaí. 

Alda Karen og Katherine deildu undurfögrum myndum frá deginum í gær á Facebook-reikningum sínum. 

„Undir sólinni, á leyniströnd í Ko'Olina, bara við tvær, með tvo sofandi seli sem vitni okkar, varðstu konan mín. Kærar þakkir til tveggja frábærra og einstakra kvenna sem hjálpuðu okkur að gera þetta að veruleika!“ skrifaði Katherine við færslu sína og þakkaði ljósmyndaranum Jackie Fiero fyrir að festa stundina á filmu og Kelehua Kawai fyrir að hefja hjónaband þeirra með fallegum orðum.

Óvænt bónorð á Akureyri og í Flórens

Alda Karen og Katherine höfðu verið saman í rúmt ár þegar Alda Karen fékk óvænt bónorð þegar þær voru staddar á Íslandi í fríi síðustu jól. 

Undanfarna mánuði hafa Alda Karen og Katherine verið á ævintýralegu ferðalagi um heiminn og hafa deilt töfrandi myndum frá hinum ýmsu stöðum á samfélagsmiðlum sínum. Þær voru staddar í Flórens á Ítalíu í sumar þegar Alda Karen kom Katherine svo á óvart og fór á skeljarnar.

Smartland óskar þeim innilega til hamingju með ástina!

mbl.is