Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar er mikill sælkeri og elskar að elda ljúffeng kræsingar þegar tími gefst. Miklar annir eru hjá Þorbjörgu þessa dagana en hún situr meðal annars t í fjárlaganefnd og er varaformaður umhverfis- og samgöngunefndar. Svo það er engin lognmolla hjá henni. Hún er fjölskyldumanneskja og gæðastundirnar eru gjarnan við matarborðið.

Haustin eru annasöm og Þorgbjörg leggur sig fram við að halda upp gæðastundum með fjölskyldunni og þá er helgar oftast best til þess fallnar. „Á virkum dögum er auðvitað minni tími til að stússast við eldamennsku og ég er hiklaust í hópi þeirra foreldra sem elda fljótlega rétti. Reyni að fara stórar Bónusferðir. Við höfum til að mynda keypt hjá Eldum rétt sem er þægilegt og vinsælt heima. Fiskikóngurinn á Sogavegi er síðan fastur punktur á mánudögum, þar sem þorskur í raspi verður gjarnan fyrir valinu eða annar góður fiskur. Á haustin er grjónagrautur oftar á borðum og pasta er nokkuð fastur dagskrárliður,“ segir Þorbjörg.
„Um helgar finnst mér skemmtilegt að geta gefið mér betri tíma í eldamennskuna. Bæði til að setjast niður í gott kaffi og morgunmat og svo að elda kvöldmat. Eitt af því sem gerir þingmennskuna svo skemmtilega er hvað við hittum margt fólk og úr ólíkum áttum. Það gerir reyndar líka að verkum að ég er voðalega heimakær um helgar. Þarf ekki meira en fólkið mitt hér heima.
Aðspurð segist Þorbjörg eiga sér sinn uppáhaldskokk. „Ina Garten er í uppáhaldi þegar ég fer að leita að uppskriftum. Hennar uppskriftum kynntist ég þegar ég bjó í Bandaríkjunum. Á nokkrar uppskriftabækur hennar. Einfaldar en góðar uppskriftir. Engir stælar eða óþarfa vesen.“
Þegar hún er beðin um að ljóstra upp hver sé hennar uppáhaldshelgarréttur var hún fljót að svara. „Ég rakst á þennan rétt, parmesan kjúklingur borinn fram með salati og kartöflu og fannst hann virka sannfærandi; bæði einfaldur og girnilegur. Úr verður góður kjúklingur sem bæði krakkar og fullorðnir ættu að hafa smekk fyrir. Rétturinn þarf síðan í sjálfu sér ekki annað en einfalt salat með. En það er ekkert verra að vera með franskar eða kartöflur með,“ segir Þorbjörg og bætir við að þessi réttur sé einn af hennar uppáhaldshelgarréttum sem slær ávallt í gegn.
Parmesan kjúklingur, salat og kartöflur
Fyrir 4
Aðferð:
Salat með sítrónu vinaigrette
Aðferð:
Franskar kartöflur
Aðferð: