Stuðli að lækkun vaxta og verðbólgu

Vextir á Íslandi | 20. október 2023

Stuðli að lækkun vaxta og verðbólgu

Samkvæmt nýrri Gallup-könnun á meðal félagsmanna Samtaka atvinnulífsins og viðhorfshóps Gallup í október er mikil samstaða á meðal atvinnulífs og almennings um áherslur í komandi kjarasamningum. Yfirgnæfandi meirihluti aðildarfyrirtækja SA og almennings nefndi samninga sem stuðli að lækkun vaxta og verðbólgu og samninga sem varðveiti kaupmátt og tryggi störf.

Stuðli að lækkun vaxta og verðbólgu

Vextir á Íslandi | 20. október 2023

Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Ljósmynd/Aðsend

Samkvæmt nýrri Gallup-könnun á meðal félagsmanna Samtaka atvinnulífsins og viðhorfshóps Gallup í október er mikil samstaða á meðal atvinnulífs og almennings um áherslur í komandi kjarasamningum. Yfirgnæfandi meirihluti aðildarfyrirtækja SA og almennings nefndi samninga sem stuðli að lækkun vaxta og verðbólgu og samninga sem varðveiti kaupmátt og tryggi störf.

Samkvæmt nýrri Gallup-könnun á meðal félagsmanna Samtaka atvinnulífsins og viðhorfshóps Gallup í október er mikil samstaða á meðal atvinnulífs og almennings um áherslur í komandi kjarasamningum. Yfirgnæfandi meirihluti aðildarfyrirtækja SA og almennings nefndi samninga sem stuðli að lækkun vaxta og verðbólgu og samninga sem varðveiti kaupmátt og tryggi störf.

Samkvæmt könnuninni telur meirihluti almennings lítið eða ekkert svigrúm vera til launahækkana hjá sínum vinnuveitanda. Aftur á móti telur yfirgnæfandi meirihluti aðildarfyrirtækja SA, eða yfir 80%, lítið eða ekkert svigrúm vera til launahækkana.

mbl.is