Alvarlegar athugasemdir við frumvarp Svandísar

Fiskeldi | 12. desember 2023

Alvarlegar athugasemdir við frumvarp Svandísar

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) gerir alvarlegar athugasemdir við fleiri atriði í frumvarpi Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra til laga um lagareldi (samheiti fyrir eldis- og ræktunargreina). Jafnframt telja samtökin mikið virðingaleysi sýnt gagnvart samráðsferlinu að gefa almenningi og hagsmunaaðilum aðeins nokkrar vikur yfir jól að kynna sér 124 blaðsíður frumvarpsins.

Alvarlegar athugasemdir við frumvarp Svandísar

Fiskeldi | 12. desember 2023

SFS segir frumvarp Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra vega að rekstrargrundvelli fiskeldisfyrirtækjanna …
SFS segir frumvarp Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra vega að rekstrargrundvelli fiskeldisfyrirtækjanna sem starfa hér á landi. mbl.is/Helgi Bjarnason

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) gerir alvarlegar athugasemdir við fleiri atriði í frumvarpi Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra til laga um lagareldi (samheiti fyrir eldis- og ræktunargreina). Jafnframt telja samtökin mikið virðingaleysi sýnt gagnvart samráðsferlinu að gefa almenningi og hagsmunaaðilum aðeins nokkrar vikur yfir jól að kynna sér 124 blaðsíður frumvarpsins.

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) gerir alvarlegar athugasemdir við fleiri atriði í frumvarpi Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra til laga um lagareldi (samheiti fyrir eldis- og ræktunargreina). Jafnframt telja samtökin mikið virðingaleysi sýnt gagnvart samráðsferlinu að gefa almenningi og hagsmunaaðilum aðeins nokkrar vikur yfir jól að kynna sér 124 blaðsíður frumvarpsins.

Segir SFS það afar skamman tíma „fyrir jafn umfangs- og áhrifamikið mál“ að birta umrætt frumvarp í samráðsgátt stjórnvalda 6. desember og gefa frest til umsagna til 3. janúar.

Í yfirlýsingu á vef SFS segir að eftir fyrstu skoðun frumvarpsins sé þegar ástæða til að gera alvarlegar athugasemdir við nokkur atriði. „Lagðar eru til svo viðurhlutamiklar refsingar og viðurlög við tilteknum atriðum, að vegið er alvarlega að rekstrargrundvelli fyrirtækja í sjókvíaeldi á Íslandi,“ segir í yfirlýsingunni.

Svandís er sögð ganga þvert á „leiðarstef“ skýrslu Boston Consulting Group sem unnin var fyrir ráðuneyti hennar og var kynnt síðastliðið vor. „Þar var bæði mælt með hóflegri gjaldtöku í vaxandi atvinnugrein sem og framsækni til framtíðar enda tækifærin mörg. Ráðherra leggur bæði til háa og íþyngjandi skatta og vegur að rekstrargrundvelli fyrirtækjanna.“

Friðun án undirbúnings og aukin gjöld

Þá segir að í frumvarpinu sé „horfið frá því að friða hafsvæði gagnvart sjókvíaeldi eftir lögákveðnum leiðum, með auglýsingu, að undangengnu vísindalegu mati og ítarlegu samráði.“ Heldur er í frumvarpinu ákveðið að friða bæði Eyjafjörð og Öxarfjörð. Bendir SFS á að þessi friðun hafi aldrei verið kynnt sem hluti af því samráðsferli sem ráðherra hrinti af stað fyrr á árinu. „Hvorki hefur því farið fram samráð né vísindaleg skoðun á svæðunum með tilliti til þess hvort þau henti undir sjókvíaeldi samkvæmt þeim skilyrðum sem um önnur svæði gilda.“

Í yfirlýsingunni er jafnframt vakin athygli á að í frumvarpinu er kynnt umtalsverð breyting á gjaldtöku af sjókvíaeldi. Gagnrýnir SFS að með nýrri aðferðafræði verði ekki tekið tillit til vaxtar greinarinnar þannig að vegið sé að rekstrargrundvelli greinarinnar.

„Með frumvarpinu ætlar ráðherra að auka þunga skatta og gjalda á fyrirtæki í sjókvíaeldi. Ganga þessi áform verulega lengra en gert er í þeim löndum sem við berum okkur saman við, þar sem stutt var við vöxt greinarinnar með skynsamlegu gjaldaumhverfi í árdaga uppbyggingar.“

„Hærri skattar og gjöld draga eðli málsins úr svigrúmi fyrirtækja til að fjárfesta í nýrri tækni eða lausnum. Ráðherra gerir þrátt fyrir það auknar kröfur á fyrirtæki í sjókvíaeldi til fjárfestinga í umhverfisvænni lausnum til matvælaframleiðslu. Það verður ekki bæði haldið og sleppt í þessum efnum. Mikill vilji er hins vegar hjá fyrirtækjum í sjókvíaeldi til að leita umhverfisvænustu leiða í sinni starfsemi, en til þess þarf mikið og þolinmótt fjármagn,“ segir í yfirlýsingunni.

Er Svandís sökuð um að ganga „gegn hagsmunum fjölda fólks í þeim sveitarfélögum sem byggja lífsviðurværi sitt á ábyrgu og sjálfbæru sjókvíaeldi. Einnig er með tillögu um friðun í frumvarpinu vegið að framtíðarmöguleikum sveitarfélaga til verðmætasköpunar með sjókvíaeldi á svæðinu.“

Styðja eflingu eftirlits

SFS kveðst hafa um langt skeið hafa lagt áherslu á að efla þurfi stjórnsýslu, eftirlit og umhverfi sjókvíaeldis á Íslandi. og styðja tillögur þess efnis. Það er talið liður í að tryggja að „atvinnugreinin geti haldið áfram að vaxa, tryggt aukna verðmætasköpun og orðið ein af burðarstoðum íslensks atvinnulífs í sátt við náttúru og samfélag.“

Jafnframt segjast samtökin hafa lagt áherslu á mikilvægi þess að gera úrbætur á regluverki landeldis svo það mæti þörfum greinarinnar sem og að draga fram þau sérkenni sem skilja landeldi frá sjókvíaeldi.

mbl.is