Framlengja umsagnarfrest í kjölfar gagnrýni

Fiskeldi | 14. desember 2023

Matvælaráðuneytið hefur ákveðið að framlengja frest til að senda inn umsgnir eða ábendingar um frumvarp Svandísar Svavarsdóttir matvælaráðherra um lagareldi til 10. janúar, að því er fram kemur í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. Upphaflega var gert ráð fyrir að frestur rynni út 3. janúar.

Frestur til að skila inn umsögnum og ábendingum í tengslum …
Frestur til að skila inn umsögnum og ábendingum í tengslum við lagareldisfrumvarp Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra hefur verið framlengdur til 10. janúar. mbl.is/Unnur Karen

Matvælaráðuneytið hefur ákveðið að framlengja frest til að senda inn umsgnir eða ábendingar um frumvarp Svandísar Svavarsdóttir matvælaráðherra um lagareldi til 10. janúar, að því er fram kemur í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. Upphaflega var gert ráð fyrir að frestur rynni út 3. janúar.

Matvælaráðuneytið hefur ákveðið að framlengja frest til að senda inn umsgnir eða ábendingar um frumvarp Svandísar Svavarsdóttir matvælaráðherra um lagareldi til 10. janúar, að því er fram kemur í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. Upphaflega var gert ráð fyrir að frestur rynni út 3. janúar.

Síðastliðinn þriðjudag birtu Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) yfirlýsingu þar sem lýst var alvarlegum athugasemdum samtakanna við frumvarpið þar sem sérstakelga var vakin athygli á að aðeins nokkrar vikur yfir hátíðirnar voru gefnar til að rýna í 124 blaðsíðna frumvarp ráðherrans.

Í tilkynningu ráðuneytisins er vakin athygli á að í frumvarpinu eru lögð til ný heildarlög um sjókvíaeldi, landeldi og hafeldi.

„Markmið frumvarpsins er að skapa lagareldi á Íslandi skilyrði til aukinnar verðmætasköpunar með sjálfbæra nýtingu og vistkerfisnálgun að leiðarljósi. Einnig er lögð áhersla á að lagareldi verði stjórnað út frá skilgreindum mælikvörðum sem komi í veg fyrir að greinin hafi neikvæð áhrif á umhverfi sitt, hvort sem er á vistkerfi eða villta stofna. Að auki verði dýravelferð og sjúkdómavarnir með besta hætti á heimsvísu.“

mbl.is