Hafa selt fjórar af hverjum tíu íbúðum

Húsnæðismarkaðurinn | 28. febrúar 2024

Hafa selt fjórar af hverjum tíu íbúðum

Búið er að selja um 40% nýrra íbúða í þremur fjölbýlishúsum við miðborgina. Sala íbúða hófst í október og veitir salan því vísbendingar um ganginn á markaðnum síðustu mánuði.

Hafa selt fjórar af hverjum tíu íbúðum

Húsnæðismarkaðurinn | 28. febrúar 2024

Búið er að selja um helming íbúða í Borgartúni 24.
Búið er að selja um helming íbúða í Borgartúni 24. mbl.is/Kristinn Magnússon

Búið er að selja um 40% nýrra íbúða í þremur fjölbýlishúsum við miðborgina. Sala íbúða hófst í október og veitir salan því vísbendingar um ganginn á markaðnum síðustu mánuði.

Búið er að selja um 40% nýrra íbúða í þremur fjölbýlishúsum við miðborgina. Sala íbúða hófst í október og veitir salan því vísbendingar um ganginn á markaðnum síðustu mánuði.

Flestar íbúðir hafa selst í Borgartúni 24 eða tæplega helmingur íbúða, eins og sést í grafinu. 

Þórunn Pálsdóttir, fasteignasali hjá Mikluborg, er að selja nýjar íbúðir í Skipholti 1. Seldar hafa verið níu íbúðir af 34 eða rúmlega fjórðungur íbúða.

Flestar íbúðir hafa selst í Borgartúni 24.
Flestar íbúðir hafa selst í Borgartúni 24.

Beðið eftir samningum

Spurð um ganginn á markaðnum segir Þórunn að umræða um kjaramál hafi talsvert að segja.

„Markaðurinn er alltaf fréttadrifinn og nú fylgjast allir með öndina í hálsinum með samningaviðræðum. Það var mjög góð hreyfing í janúar þegar allir héldu að kjarasamningarnir væru að klárast. Svo var heldur rólegra á markaðnum þegar hlé varð á viðræðum,“ segir Þórunn.

Stofa í útsýnisíbúð í Borgartúni 24.
Stofa í útsýnisíbúð í Borgartúni 24. mbl.is/Árni Sæberg

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

mbl.is