Eftirlit með heimagistingu hert

Húsnæðismarkaðurinn | 4. mars 2024

Eftirlit með heimagistingu hert

Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra undirritaði í dag samning við Sýslumanninn á höfuðborgarsvæðinu um aukið eftirlit með heimagistingu og rekstrarleyfisskyldri gististarfsemi.

Eftirlit með heimagistingu hert

Húsnæðismarkaðurinn | 4. mars 2024

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra. mbl.is/Árni Sæberg

Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra undirritaði í dag samning við Sýslumanninn á höfuðborgarsvæðinu um aukið eftirlit með heimagistingu og rekstrarleyfisskyldri gististarfsemi.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra undirritaði í dag samning við Sýslumanninn á höfuðborgarsvæðinu um aukið eftirlit með heimagistingu og rekstrarleyfisskyldri gististarfsemi.

Heimagisting umfram 90 daga og 2 milljónir króna flokkast sem atvinnustarfsemi.

„Markmiðið er að hafa hvetjandi áhrif á einstaklinga til að skrá skammtímaútleigu sína hjá sýslumanni og endurnýja skráningu árlega. Heimagisting umfram 90 daga og 2 m.kr.  flokkast sem atvinnustarfsemi og er lögð sérstök áhersla á eftirlit með gististarfsemi sem kallar á rekstrarleyfi,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. 

Samningurinn sem undirritaður var í dag felur í sér 30 milljóna króna viðbótarframlag til heimagistingarvaktarinnar eins og það er kallað og mun vera hluti af aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að styðja við framboðshlið húsnæðismarkaðarins á suðvesturhorni landsins. 

„Það er mikilvægt að halda vel utan um heimagistingu og er þessi samningur liður í þeirri vegferð. Ég vænti mikils af samstarfinu við sýslumannsembættið,“ er haft eftir Lilju. 

Átaksverkefni til eins árs

Átakið er til eins árs samkvæmt tilkynningunni en lögð er áhersla á að skýrari yfirsýn tryggi rétt skattskil einstaklinga og lögaðilar sem stunda gististarfsemi afli sér rekstrarleyfis. 

Skýrari yfirsýn yfir raunverulegt umfang heimagistingar tryggir rétt skattskil einstaklinga og að lögaðilar sem stunda gististarfsemi afli sér rekstrarleyfis og starfsemin fari þar með að þeim lögum sem um hana gilda. Lagt er upp með að átaksverkefnið sé til eins árs og felur það m.a. í sér að starfsmönnum í heimagistingarvakt verði fjölgað, aukin áhersla lögð á frumkvæðiseftirlit sem og að fylgst verði með notkun skráningarnúmera í markaðssetningu,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is