Hollendingur kveikti í sér skammt frá hollenska sendiráðinu í Jakarta í Indónesíu. Hann hefur verið fluttur á spítala og að sögn lögreglunnar er hann með alvarleg brunasár.
Um er að ræða 69 ára mann sem kveikti í sér í hliðargötu skammt frá sendiráðinu. Því næst hljóp hann í átt að inngangi sendiráðsins þar sem öryggisverðir reyndu að slökkva eldinn.
„Hann var fluttur á spítala og er með mikil og alvarleg brunasár. Við vitum ekki hver tilgangur hans var með þessum verknaði,“ segir lögreglustjórinn í Jakarta.
Að sögn AFP-fréttaveitunnar hefur ekki náðst í starfsfólk hollenska sendiráðsins.