Meðal þeirra sem létust í Hama-héraði í Sýrlandi í dag eru börn undir tveggja ára aldri. Vígamennirnir notuðu m.a. hnífa við aftökurnar. Sum líkin voru brennd inn í húsum sínum.
BBC segir að minnst 86 hafi fallið í bæjunum Qubair og Maarzaf. Ríkissjónvarpið segir að „hryðjuverkamenn“ hafi ráðist á þorpin. Þeir sem vitni urðu að fjöldamorðunum segja að stuðningsmenn stjórnvalda hafi framið morðin, en talsmenn stjórnarinnar segja að vopnaðar sveitir hafi verið að verki í þeim tilgangi að auka líkur á erlendri innrás í landið.
Þeir sem urðu vitni að morðunum í Qubair segja að morðingjarnir hafi komið frá nágrannabæ þar sem stuðningur við stjórnvöld sé mikill. Þetta sé hluti af vopnuðum hópum sem kallist „shabiha“.
Lýsingar á því sem gerðist eru hryllilegar. Vitni segja að fólkið hafi verið stungið til bana eða skotið af stuttu færi. Börn, allt niður í tveggja ára aldur, séu meðal þeirra sem létust. Sum líkin hafi verið brennd inn í húsum sínum, en önnur hafi verið flutt í burt.
Fullyrt er að 78 hafi fallið Qubair, þar af 35 sem tilheyri sömu fjölskyldunni.
Talsmaður utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna sagði í kvöld að Hillary Clinton utanríkisráðherra sé að vinna að áætlun sem gerir ráð fyrir valdaskiptum í Sýrlandi. Hann segir að umheimurinn megi ekki bregðast vonum íbúa Sýrlands um breytingar.
Í síðasta mánuði voru 108 drepnir í borginni Houla í Sýrlandi. Í hópi þeirra sem féllu var fjöldi barna og kvenna.