Vegsprengja varð sjö að bana í Pakistan í dag þegar bifreið lögreglumanna var ekið nálægt henni. Sex lögreglumenn og einn almennur borgari lét lífið í sprengjutilræðinu.
Árásin átti sér stað í borginni Kohat í norðvesturhluta landsins. Haft er eftir talsmanni lögreglu að sérstaklega hafi verið setið fyrir lögreglumönnunum en sprengjunni var komið fyrir í ræsi í götunni.
Enginn hefur lýst tilræðinu á hendur sér en öfgasinnaðir íslamistar hafa gert fjölmargar árásir á þessu svæði.
Fyrr í dag létust 25 manns í öðru sprengjutilræði. Þrjú börn eru sögð meðal hinna látnu.