Rannsaka enn andlát Yöru

Yara fannst látin á heimili sínu fyrir rúmum tveimur vikum.
Yara fannst látin á heimili sínu fyrir rúmum tveimur vikum. Skjáskot af Expressen.

Rannsókn á dauða hinnar átta ára gömlu Yöru frá Palestínu er langt í frá lokið. Hún fannst látin á heimili sínu í Karlskrona í Suður-Svíþjóð að kvöldi 1. maí sl. Kona og maður, bæði um þrítugt og grunuð um að eiga þátt í dauða stúlkunnar, hafa setið í gæsluvarðhaldi í rúmar tvær vikur.

Farið hefur verið fram á að gæsluvarðhaldið verði framlengt um einn mánuð. Pernilla Åström, saksóknari í málinu, segir að enn eigi eftir að skoða marga þætti málsins. Expressen greinir frá þessu. 

Eftir andlát Yöru hafa nokkrir stigið fram og sagt frá ýmsum þáttum í lífi hennar sem voru í ólagi. Svo virðist sem stúlkan hafi oft verið illa klædd, stolið mat úr matvöruverslun, borið ábyrgð á tveimur ungum börnum og verið marin á fótunum.

Fé­lagsþjón­ust­an, skóla­yf­ir­völd og lög­regla í Karlskrona í Svíþjóð hafa verið gagn­rýnd fyr­ir að bregðast ekki við vís­bend­ing­um um að stúlk­an byggi við slæm­ar aðstæður. 

Ræddu við foreldrana sex dögum síðar

Yara reyndi að stela úr búðinni

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert