Fjölmenn mótmæli eru við Downingstræti 10, híbýli forsætisráðherra Bretlands, Theresu May. Þau fóru fram á sama tíma og hún hitti þá sem lifðu af eldsvoðann í Grenfell-háhýsinu og stóð sá fundur yfir í tvær og hálfa klukkustund. Þetta kemur fram á fréttastofu Skynews.
Talsmaður hópsins, sem fór á fund forsætisráðherrans, sagði að hópurinn hafi gert grein fyrir kröfum sínum og til hvers hann ætlast af stjórnvöldum. Hann sagði jafnframt að tilkynning yrði gefin út síðar. Maðurinn vildi ekki láta nafn síns getið.
Mótmælendur komu einnig saman við Whitehall, þinghúsið við Westminster, og kröfðust þess að May segði af sér. Viðbrögð hennar við eldsvoðanum og vinnubrögð eru sögð handahófskennd og hefur hún verið harðlega gagnrýnd fyrir að bregðast ekki rétt við.
Mótmælendur krefjast þess að borgaryfirvöld axli ábyrgð á eldsvoðanum en íbúar í háhýsinu höfðu bent á, fyrir brunann, að brunavörnum væri ábótavant. Þeir krefjast þess einnig að yfirvöld bregðist betur og hraðar við að veita eftirlifendum húsaskjól og nauðsynlega aðstoð.
Í gær ruddust mótmælendur inn í ráðhús Kensington- og Chelsea-hverfanna þar sem sömu kröfur heyrðust. Mikil reiði kraumar á meðal íbúanna sem segja að á þá hafi ekki verið hlustað og þeir krefjast að breyting verði þar á.
Tala látinna er komin í 58. Óttast er að 70 til viðbótar er saknað, samkvæmt upplýsingum BBC.