Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, segir að útganga Breta úr Evrópusambandinu, Brexit, taki gildi föstudaginn 29. mars árið 2019 klukkan 23. Hún segir að tilraunir til þess að koma í veg fyrir Brexit verði ekki liðnar.
Að sögn May mun þingið fara gaumgæfilega yfir útgöngufrumvarpið í næstu viku og hún varar við tilraunum til þess að reyna að hægja á eða stöðva ferlið. Þetta kemur fram í grein sem May skrifar í Telegraph í dag.
Bretar samþykktu að ganga úr Evrópusambandinu í þjóðaratkvæðagreiðslu í fyrra. Alls greiddu 51,9% atkvæði með útgöngu.
Tímasetning Brexit er rituð á forsíðu Brexit-frumvarpsins og segir May það sýna vilja ríkisstjórnarinnar til þess að útgangan verði að veruleika.
„Þetta verður ritað svart á hvítu á forsíðu sögulegrar lagasetningar, Bretland mun yfirgefa ESB 29. mars 2019 klukkan 23.“