Mannbjörg varð undan ströndum bæjarins Mehamn í norðurhluta Noregs nú undir kvöld. Engu mátti muna að Íslendingur á bát drukknaði en hann flaut í björgunarhring í gallabuxum þegar honum var bjargað úr sjónum.
Sigurður Hjaltested var við veiðar á bátnum Nero og hringdi í félaga sinn, Kjartan Jóhannsson, þegar hann tók eftir því að báturinn var farinn að taka inn á sig vatn en þá var Sigurður um 3,5 kílómetra frá landi. Kjartan hringdi beint eftir aðstoð björgunarskips á svæðinu en það var komið á vettvang 20 mínútum síðar.
„Báturinn sökk fimm mínútum eftir að Sigurður hringdi í mig en það var annar fiskibátur á svæðinu sem veiddi hann upp úr sjónum. Hann flaut bara um þarna í björgunarhringnum í gallabuxum,“ segir Kjartan í samtali við mbl.is.
Kjartan segir að allt hafi gerst mjög hratt þarna en Sigurður náði ekki að losa björgunarbát á Nero eða fara í flotgalla. „Þetta var bara Guð og lukkan,“ segir Kjartan og bætir við að það hefði ekki mátt tæpara standa:
„Þetta var eins tæpt og hugsast getur. Það er svakalegur straumur þarna svo þetta er alls ekki góður staður til að lenda í einhverju svona. Hann var heppinn í dag, þó að það sé föstudaginn 13.“
Kjartan segir að Sigurður hafi slegið á létta strengi við komuna í land þrátt fyrir sjávarháskann. „Það fyrsta sem hann sagði var að hann ætlaði aldrei aftur í sjó á föstudaginn 13.!“