Stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn á Spáni hefur lagt fram tillögu um vantraust á forsætisráðherra landsins, Mariano Rajoy. Sósíalistaflokkurinn lagði tillöguna fram eftir að Íhaldsflokkurinn Partido Popular (PP) var fundinn sekur um að græða á spillingu.
Tillagan var lögð fram í neðri deild spænska þingsins, samkvæmt því sem talsmaður Sósíalistaflokksins sagði við AFP-fréttastofuna.
176 af 350 þingmönnum í neðri deild þingsins þurfa að samþykkja tillöguna. Samkvæmt erlendum miðlum er verkefnið talið erfitt vegna þess hve sundurleitur hópur stjórnarandstaðan er.
Hæstiréttur Spánar dæmdi í gær 29 manns til samtals 351 árs fangelsisvistar vegna spillingarmálsins sem nefnt hefur verið Gurtel-málið.
Kaupsýslumaðurinn Francisco Correa er sakaður um að hafa verið forsprakki spillingarnetsins og að hafa greitt mútugreiðslur til að fyrirtæki hans fengju samninga við hið opinbera víða um Spán. Carrera var dæmdur í 51 árs fangelsi.
Er þetta í fyrsta skipti sem ríkjandi stjórnarflokkur á Spáni hefur verið fundinn sekur fyrir dómi. Rajoy, sem er 63 ára og hefur verið formaður íhaldsflokksins Partido Popular frá árinu 2004, er ekki sakaður um neitt.