Nuddari í Kaliforníu lagði í gær fram kæru á hendur leikaranum Kevin Spacey og sakar hann Spacey um að hafa káfað á sér þegar hann var í nuddi hjá honum.
Kæran var lögð fram fyrir dómi í Los Angeles í gær og er ekki upplýst um nafn kærandans, aðeins að atvikið hafi átt sér stað fyrir tveimur árum í Malibu. Á starfsmaður Spacey að hafa pantað tíma fyrir leikarann á heimili hans. Þegar Spacey fór að káfa á honum forðaði nuddarinn sér burtu af heimili Spacey og tók nuddbekkinn með en skildi eftir annan búnað.
Rannsókn stendur yfir á meintu kynferðislegu ofbeldi sem leikarinn er sakaður um bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum. Hann hefur ekki verið ákærður.