Gert að draga úr refsiaðgerðum gegn Íran

Donald Trump Bandaríkjaforseti. Hann hefur sagst munu fylgja refsiaðgerðum gegn …
Donald Trump Bandaríkjaforseti. Hann hefur sagst munu fylgja refsiaðgerðum gegn Íran eftir af fullri hörku. AFP

Alþjóðadómstóllinn (ICJ), sem er æðsti dómstóll Sameinuðu þjóðanna, hefur fyrirskipað Bandaríkjunum að draga úr refsiaðgerðum sem þarlend stjórnvöld settu á Íran í maí, að því er BBC greinir frá.

Bandarísk stjórnvöld sögðu sig frá alþjóðlegu kjarnorkusamkomulagi við Íran í vor og í ágúst tilkynnti Donald Trump Bandaríkjaforseti að hann muni fylgja refsiaðgerðum gegn Íran eftir af fullri hörku.  

Úrskurðaði dómstóllinn í dag að bandarísk yfirvöld verði að fjarlægja „allar hindranir“ á flutningi mannúðargagna til Íran, m.a. á flutningi matvæla, lyfja og öryggisbúnaðar fyrir flugvélar.

Bandarísk stjórnvöld fullyrða hins vegar að úrskurðurinn sé „ósigur“ fyrir Íran, þar sem þau heimili nú þegar flutning gagna í mannúðarskyni.

Úrskurðir Alþjóðadómstólsins eru bindandi, en dómstóllinn hefur enga möguleika á að fylgja þeim eftir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert