Íbúar á Krímskaga minnast í dag 15 nemenda og 5 kennara sem átján ára piltur skaut til bana í tækniskóla í borginni Kerch. Yfir 40 manns særðust í árásinni en árásarmaðurinn tók eigið líf.
Í fjölmiðlum er talað um „rússneska Columbine“ og er þar vísað til fjöldamorðanna í bandaríska framhaldsskólanum Coumbine árið 1999 þar sem tveir fyrrverandi nemendur drápu tólf nemendur skólans og einn kennara.
Árásin var gerð af nemanda skólans, Vladislav Roslyakov, á miðvikudag. Mikill viðbúnaður er vegna minningarathafnarinnar en íbúar borgarinnar Kerch eru 150 þúsund talsins. Hefur öllum götum verið lokað í miðborginni og er mikið blómahaf á aðaltorgi borgarinnar þar sem íbúar hafa komið og lagt blóm til minningar um þá sem létust í árásinni sem er sú skelfilegasta á Krímskaga hingað til.
Af þeim sem lifðu af árásina eru nokkrir mjög alvarlega særðir. Margir þeirra særðust þegar sprengja sprakk í skólanum en við sprenginguna þeyttust málmflísar í allar áttir með skelfilegum afleiðingum.
Stúlka, sem var áður kærasta Roslyakov, segir að hann hafi talað um að hefna sín fyrir einelti sem hann varð fyrir. Hann hafi glatað trúnni á fólk þegar bekkjarfélagar hans lögðu hann í einelti fyrir það eitt að vera öðruvísi. Hann hafi ekki viljað lifa lengur.
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir ástæðu árásarinnar vera alþjóðavæðingu og framhald atburða sem eigi upptök sín í Bandaríkjunum.
Rússneskir fjölmiðlar hafa birt myndir af Roslyakov þar sem hann er klæddur á svipaðan hátt og Eric Harris sem var annar af fjöldamorðingjunum í Columbine.
Rússneska dagblaðið Kommersant greinir frá því að hann hafi alist upp við fátækt en faðir hans er fatlaður. Móðir hans er vottur Jehova en trúarsamtökin eru bönnuð í Rússlandi þar sem þau eru talin öfgahópur.