Mikhail Gorbachev, fyrrverandi leiðtogi Sovétríkjanna, gagnrýnir harðlega það sem hann segir óskynsamlega ákvörðun Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, að rifta afvopnunarsamkomulagi við Rússa sem hann og Ronald Regan, þáverandi Bandaríkjaforseti, undirrituðu í kalda stríðinu, árið árið 1987. AFP-fréttastofan greinir frá.
„Er virkilega svona erfitt að skilja að það rifta þessu samkomulagi sýnir merki um skort á dómgreind,“ sagði hinn 87 ára Gorbachev í viðtali við Interfax-fréttastofuna.
„Að rifta slíku samkomulagi eru mistök,“ sagði hann og ítrekaði að embættismenn mættu alls ekki rifta eldri afvopnunarsamningum.
„Alla samninga sem miða að kjarnorkuafvopnun og takmörkun kjarnavopna verður að varðveita til að bjarga lífi á jörðinni,“ sagði hann jafnframt.
Gorbachev varaði Trump einnig við því að áform hans myndu grafa undan þeirri miklu vinnu sem hefði verið lögð í að ná fram kjarnorkuafvopnun af hálfu Sovétríkjanna og Bandaríkjanna.
Sergei Ryabkov, aðstoðarmaður utanríkisráðherra Rússa, hafði áður sagt það hættulegt skref að rifta samkomulaginu. Það yrði fordæmt af alþjóðasamfélaginu.
Trump tilkynnti það í gærkvöldi að hann ætlaði að rifta svokölluðum INF-afvopnunarsamningi sem Ronald Regan, þáverandi forseti Bandaríkjanna, og Mikhail Gorbachev, sem var leiðtogi Sovétríkjanna, undirrituðu í Washington árið 1987 en þeir höfðu fundað í Höfða í Reykjavík árið áður.
Sagði Trump á fundi með fréttamönnum að Rússar hefðu „brotið gegn“ samkomulaginu sem leggur bann við meðallangdrægum eldflaugum. Bætti hann við að Bandaríkin muni ekki leyfa Rússum að að framleiða slík vopn á meðan þau megi það ekki.