Móðir Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, Herlind Kasner, er látin. Talsmaður þýsku ríkisstjórnarinnar greindi frá andláti hennar í dag samkvæmt frétt AFP.
Fram kemur í fréttinni að ekki hafi verið veittar nánari upplýsingar um andlátið en samkvæmt þýska dagblaðinu Bild hafi andlát Kasners borið að fyrr í þessum mánuði.
Merkel fæddist í Hamborg árið 1954 en nokkrum vikum eftir að hún fæddist flutti Kasner, sem var níræð þegar hún lést, til fyrrverandi Austur-Þýskalands með eiginmanni sínum Horst Kasner, en hann lést árið 2011.